Hvað gerist ef rafmagn og hiti dettur út í þrjá daga?

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra ávarpar fundinn.

Hvað gerum við ef rafmagn, hiti og net detta út í þrjá daga? Þetta er spurning sem reynt verður að svara á hádegisfundi Varðbergs í dag þar sem fjallað verður um það hvort íslensk heimili og samfélag séu búin undir áföll.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra ávarpar fundinn, Runólfur Þórhallsson, yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, flytur aðalerindið og greiningardeild ríkislögreglustjóra og netbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fjalla um fjölþáttaógnir og netglæpi.

Fundurinn er haldinn í kjölfar útgáfu bæklingsins Verum viðbúin sem almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gaf út í byrjun mánaðarins. Þar eru landsmenn hvattir til að tryggja grunnþarfir heimilisins í minnst þrjá daga, með vatni, mat, lyfjum, reiðufé og útvarpi sem gengur fyrir rafhlöðum. Bæklingurinn er svar við breyttu öryggisumhverfi, þar sem skemmdarverk og netárásir geta raskað rafmagni, fjarskiptum og greiðslumiðlun.

Fundurinn hefst klukkan 12 og stendur til 13 og verður hægt að fylgjast með beinu streymi frá honum hér að neðan.

Runólfur Þórhallsson fer í aðalerindi sínu, „Viðbúnaður heimilanna í almannavarnaástandi“, yfir það hvað almenningur getur sjálfur gert og hvernig almannavarnir búa sig undir langvarandi rof á innviðum. Finnbogi Jónasson, aðstoðaryfirlögregluþjónn og deildarstjóri greiningardeildar ríkislögreglustjóra, fjallar um fjölþáttaógnir, og fulltrúar netbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu ræða netglæpi og netsvik. 

Á milli erinda verða sýnd stutt, fyrir fram tekin viðtöl við Gylfa Þór Þorsteinsson hjá Rauða krossinum, Pétur Krogh Ólafsson hjá Veitum og Unni Kristínu Sveinbjarnardóttur, sviðsstjóra stafræns öryggis hjá Fjarskiptastofu.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab