Rannsakar hvort viðskiptahindranir hafi hækkað gosverð
CCEP er með höfuðstöðvar í Bretlandi og selur gosdrykki og íþróttadrykki frá bandaríska drykkjarframleiðandanum meðal annars í Belgíu, Frakklandi, Þýskalandi, á Spáni og í Svíþjóð. AFP
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tilkynnti í dag að hún hefði hafið rannsókn á Coca-Cola Europacific Partners (CCEP), öðru tveggja átöppunarfyrirtækja Coca-Cola í Evrópu.
Grunur leikur á að fyrirtækið hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að hindra viðskipti milli aðildarríkja. Það kann að hafa leitt til hærra verðs á gosdrykkjum.
Framkvæmdastjórnin kannar meðal annars hvort CCEP hafi brotið gegn samkeppnisreglum ESB með því að torvelda viðskipti með kolsýrða gosdrykki og íþróttadrykki milli aðildarríkja sambandsins.
„Við rannsökum hvort Coca-Cola hafi komið upp hindrunum milli landsmarkaða sem gera smásölum erfiðara fyrir að kaupa vörur frá öðrum löndum og ná betri kjörum,“ sagði Teresa Ribera, sem fer með samkeppnismál í framkvæmdastjórn ESB.
CCEP er með höfuðstöðvar í Bretlandi og selur gosdrykki og íþróttadrykki frá bandaríska drykkjarframleiðandanum meðal annars í Belgíu, Frakklandi, Þýskalandi, á Spáni og í Svíþjóð.
Kanna hvort afsláttur hafi verið háður útflutningsskilyrðum
Rannsóknin beinist að viðskiptum CCEP við stórmarkaði og aðra smásala. Framkvæmdastjórnin hyggst meðal annars kanna hvort fyrirtækið hafi bundið lækkun heildsöluverðs því skilyrði að drykkirnir yrðu ekki fluttir út til annarra aðildarríkja ESB.
Einnig verður kannað hvort CCEP hafi neitað smásölum um að gera innkaupasamninga sem næðu til fleiri en eins lands og krafist þess að gerður yrði sérstakur samningur fyrir hvert land.
Ribera sagði að þessi háttsemi kynni að hafa dregið úr samkeppni og leitt til hærra verðs og minna úrvals fyrir neytendur. Fólk ætti ekki að þurfa að greiða meira fyrir sama drykk bara vegna þess í hvaða aðildarríki það býr.
CCEP kveðst ætla að vinna með framkvæmdastjórninni
CCEP kvaðst ætla að halda áfram að eiga fullt samstarf við framkvæmdastjórnina vegna rannsóknarinnar. Fyrirtækið sagðist taka samkeppnislöggjöf alvarlega og leggja ríka áherslu á að fara að öllum lögum og reglum sem um starfsemi þess gilda.
Enginn frestur hefur verið settur til að ljúka rannsókninni. Framkvæmdastjórnin tók fram að með því að hefja rannsókn hefði hún enga afstöðu tekið til niðurstöðu málsins.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗