Þorskur uppistaða aflans hjá Drangey
Ferskfisktogarinn Drangey. Skipið kom til heimahafnar á Sauðárkróki með 160 tonna afla í morgun. mbl.is/RAX
Drangey SK og Sigurborg SH, skip Fisk Seafood, lönduðu bæði í morgun. Drangey landaði 160 tonnum á Sauðárkróki og Sigurborg 56 tonnum á Grundarfirði.
Fram kemur á vef útgerðarinnar að Drangey hafi verið með um 119 tonn af þorski og um 27 tonn af ufsa en minna í öðrum tegundum.
Þorskurinn stóð því undir rétt tæplega þremur fjórðu hlutum aflans og ufsi tæpum 17 prósentum.
Drangey er á vefnum aðallega sögð hafa verið við veiðar á fiskimiðunum Ostahrygg, sem eru um hundrað kílómetra norðvestur af Grímsey.
Einnig hafi skipið kastað á Tungunni og á Grímseyjarsvæði en svo endaði túrinn á Sléttugrunni, sem eru fiskimið norður af Öxarfirði.
Þá segir í færslu á vefnum að Sigurborg SH hafi komið til löndunar í Grundarfirði í morgun með um 56 tonna afla.
„Mest var af karfa, eða um 17 tonn, svo um 16 tonn af ýsu og um 8 tonn af þorski,“ segir þar.
Sigurborg er meðal annars sögð hafa verið á veiðum á Búrbanka, sem eru mið á utanverðum miðjum Faxaflóa og svo norðvestan við Sandgerði.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗