Dr. Gunni og Ágústa ástfangin í Hafnarfirði

Dr. Gunni birti mynd af sér og Ágústu Kolbrúnu Roberts á Instagram í vikunni sem leið. Parið er ástfangið. Skjáskot/Instagram

Það var mikið um að vera á Instagram í vikunni sem leið. Í myrkrinu er gott að vera ástfangin eins og Dr. Gunni og Ágústa Kolbrún Roberts jógakennari og listakona. Ef ástin er ekki með manni í liði á þessum síðustu og verstu er alltaf hægt að skella sér til Parísar. 

Skvísulæti í París!

Sunneva Eir Einarsdóttir, hlaðvarpsstjarna og áhrifavaldur, fór til Parísar að njóta lífsins. Hún gleymdi ekki myndavélinni heima. 

Dr. Gunni er ástfanginn!

Tónlistarmaðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni, deildi paramynd af sér og kærustu sinni, Ágústu Kolbrúnu Roberts. Myndin var tekin í Hafnarfirði. 

Fékk sér vín!

Hlaðvarparsstjarnan Birta Líf Ólafsdóttir fór til Parísar með vinkonuhópnum og fékk sér að sjálfsögðu gott að borða og gott vín. Enda ekki annað í boði í París. 

Setti á sig bindi!

Bindi er ekki bara fyrir karlmenn. Samfélagsmiðlastjarnan Magnea Björg Jónsdóttir setti á sig bindi og fór í leðurjakka. 

Tími fyrir loðfeld!

Einkaþjálfarinn Hafdís Björg Kristjánsdóttir er kominn í vetrarstuð og klæddi sig upp í pels. 

Fögnuðu ástinni í útlöndum!

Hrafnhildur Lúthersdóttir, fyrrverandi sunddrottning, skellti sér til útlanda með unnusta sínum, fjölmiðlamanninum Tómasi Steindórssyni. Þau voru með sparifötin meðferðis enda fóru þau í ferðina til þess að fagna ástinni. 

Í veseni á djamminu!

Þúsundþjalasmiðurinn Unnur Borg Ólafsdóttir lenti í veseni á djamminu. Það kom gat á kjólinn hennar og það reyndist erfitt að vera á hælaskóm í snjónum. 

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab