Réttarholtsskóli og Laugalækjarskóli unnu báðir tvöfalt
Lið Laugalækjarskóla vann í 7. bekk bæði í karla- og kvennaflokki á Grunnskólamóti KRR. Ljósmynd/Knattspyrnuráð Reykjavíkur
Réttarholtsskóli varð meistari í karla- og kvennaflokki í 10. bekk og Laugalækjarskóli meistari í karla- og kvennaflokki í 7. bekk á Grunnskólamóti KRR í fótbolta í ár.
Mótið fór fram í Egilshöll í nóvember en í fyrsta skipti fór það fram á skólatíma um morguninn en ekki síðdegis eins og áður.
Knattspyrnuráð Reykjavíkur (KRR) heldur mótið í góðu samstarfi við KSÍ.
Réttarholtsskóli vann Hlíðaskóla 4:1 í úrslitaleik í 10. bekk drengja og stúlkurnar í 10. bekk Réttarholtsskóla unnu Laugalækjarskóla í úrslitaleik 2:0.
Lið Réttarholtsskóla unnu bæði í karla- og kvennaflokki í 10. bekk á Grunnskólamóti KRR. Ljósmynd/Knattspyrnuráð Reykjavíkur
Laugalækjarskóli vann Melaskóla 5:0 í úrslitaleik 7. bekkjar drengja og stúlkurnar í 7. bekk Laugarlækjarskóla unnu Rimaskóla 1:0 í úrslitaleik.
Fyrst haldið árið 1985
Grunnskólamót Reykjavíkur í knattspyrnu var fyrst haldið árið 1985 og var þá leikið í ellefu manna bolta í 10. bekk.
Frá 2003 hefur einnig verið keppt í 7. bekk karla og kvenna sem og í 10. bekk. Leikið hefur verið í sjö manna bolta innandyra í Egilshöll frá 2003 en mótið fór ekki fram vegna heimsfaraldurs kórónaveirunnar árin 2021 og 2022.
Knattspyrnuráð Reykjavíkur hefur séð um skipulag mótsins allt frá upphafi í þessa rúmlega fjóra áratugi.
Um 75 til 80 bekkir taka þátt í mótinu og iðkendur eru um 1.200 til 1.300 árlega.
Leiknir R. sá um dómgæslu um árabil en undanfarin ár hefur KSÍ aðstoðað KRR við dómgæslu þar sem þrír dómarar hafa alfarið séð um allt mótahaldið.
Mikil ánægja með mótið
„Skólarnir hafa verið harðir á því að mótið verði áfram, en nú fór það fram á skólatíma í fyrsta skipti. Mjög líklegt er að það verði þannig framvegis,“ sagði Steinn Halldórsson, formaður KRR, í samtali við mbl.is.
Að sögn Steins greiða bekkirnir sem taka þátt þátttökugjöld sem fara upp í dómarakostnað og verðlaun. Þeir bekkir sem sigra fá eignarbikar og verðlaunapeninga, auk farandbikars sem gengur á milli sigurvegara milli ára.
„Það hefur verið mikil ánægja með mótið í gegnum tíðina. Kennarar sem og foreldrar hafa almennt verið sáttir og kvartanir verið í algjöru lágmarki,“ sagði Steinn sem hefur komið að skipulagi mótsins frá upphafi.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗




