Fréttu af útspili eftirlitsins í fjölmiðlum
Magnús segir að verð á eldsneyti hjá N1 hafi fylgt þróun heimsmarkaðsverðs og muni gera það áfram. Samsett mynd/Colourbox/Aðsend
Magnús Hafliðason, framkvæmdastjóri N1, segir að bensínverð muni halda áfram að lækka hér á landi ef heimsmarkaðsverð heldur áfram að lækka. N1 hafi þegar hafið verðlækkanir í kjölfar þróunar á erlendum mörkuðum og muni halda því áfram á meðan aðstæður gefi tilefni til.
Magnús hafnar því að breytingar á heimsmarkaðsverði skili sér ekki til neytenda hér á landi og vísar til þess að framlegð N1 hafi dregist töluvert saman á árinu. Þá segir hann félagið reiðubúið að afhenda Samkeppniseftirlitinu öll þau gögn sem óskað verði eftir vegna athugunar eftirlitsins á þróun eldsneytisverðs.
Greint var frá því í morgun að Samkeppniseftirlitið hefði ákveðið að kalla eftir frekari gögnum frá olíufélögunum til að leggja mat á þróun eldsneytisverðs frá 1. september síðastliðnum.
Magnús segir í samtali við mbl.is að N1 hafi fyrst frétt af fyrirhugaðri gagnaöflun í fjölmiðlum.
„Við lásum bara um þetta í fjölmiðlum eins og aðrir,“ segir hann en tekur fram að félagið muni að sjálfsögðu verða við beiðni eftirlitsins.
Fordæmalausir tímar
Alþýðusamband Íslands (ASÍ) gagnrýndi í síðustu viku að lækkun heimsmarkaðsverðs á bensíni hefði ekki skilað sér að fullu í lægra verðlagi hér á landi.
Í úttekt ASÍ kom fram að heimsmarkaðsverð bensíns hefði lækkað frá því um miðjan september en innlent bensínverð, án opinberra gjalda, hefði haldið áfram að hækka fram í byrjun nóvember og aðeins lækkað lítillega síðan.
Magnús segir hins vegar að verð á eldsneyti hjá N1 hafi fylgt þróun heimsmarkaðsverðs og muni gera það áfram.
„Það er alveg rétt að verð hefur byrjað að lækka núna í nóvember, en það er í rauninni ekki fyrr en eftir þingkosningarnar í Bandaríkjunum, að því er virðist, sem að það svo fer að fara jafnt og þétt niður á við. Og síðan 11. nóvember höfum við verið að lækka verð og menn halda því áfram meðan að þróunin heldur áfram,“ segir Magnús.
Miklar sveiflur hafi einkennt heimsmarkaðinn að undanförnu og verð jafnvel tekið verulegum breytingum milli daga.
„Þetta eru búnir að vera fordæmalausir tímar á markaðnum,“ segir hann.
Framlegð N1 hafi lækkað töluvert
Magnús vísar jafnframt til uppgjörs N1 og segir það sýna að hækkanir á heimsmarkaðsverði hafi ekki að fullu verið látnar koma fram í verði til neytenda.
„Framlegð hefur lækkað töluvert á þessu ári, að minnsta kosti í okkar tilviki.“
Það sé að hans mati vísbending um að félagið hafi ekki velt öllum kostnaðarhækkunum út í verðlagið.
ASÍ hefur hins vegar bent á að innlent bensínverð án opinberra gjalda hafi hækkað um 40% frá ársbyrjun á meðan heimsmarkaðsverð, samkvæmt viðmiði sambandsins, hafi hækkað um 20% í íslenskum krónum.
Sambandið telur að lækkanir á heimsmarkaði skili sér hægar til íslenskra neytenda en verðhækkanir, þótt það taki fram að samanburðurinn einn og sér nægi ekki til að skera úr um hvort munur sé á hraða verðaðlögunar.
Vill ekki leggja mat á vinnubrögðin
Magnús segir N1 hafa átt góð samskipti við Samkeppniseftirlitið undanfarna mánuði og að stofnunin hafi þegar fengið umfangsmikil gögn frá félaginu.
Hann segist ekki vita nákvæmlega hvaða viðbótargagna verði óskað en félagið muni afhenda þau þegar beiðnin berst.
„Þeir hafa mikil gögn frá fyrri mánuðum frá okkur og við eigum bara eftir að sjá hverju þeir eru að óska eftir og munum bara afhenda þau gögn. Það er bara alveg sjálfsagt.“
Spurður hvort ekki hefði verið eðlilegra að upplýsa olíufélögin um fyrirhugaða gagnaöflun áður en greint var frá henni opinberlega segir hann að það hefði hugsanlega verið æskilegra.
Hann vill þó ekki leggja frekara mat á vinnubrögð eftirlitsins.
Verð muni fylgja heimsmarkaði í báðar áttir
Magnús ítrekar að verðþróun á erlendum mörkuðum muni áfram ráða miklu um verð á bensíndælum hér á landi.
„Ef það heldur áfram að lækka, þá mun verðið lækka á dælunni. Ef það fer aftur upp, þá mun það líka fylgja.“
Hann telur að þau gögn sem Samkeppniseftirlitið hafi þegar undir höndum, ásamt þeim sem óskað verði eftir, eigi að gefa stofnuninni góðan grundvöll til að leggja mat á verðþróunina.
„Þeir ættu að hafa allan grundvöll til að leggja mat á það,“ segir Magnús.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗