Afar sorgleg staða einnar skærustu stjörnu heims - Annað bakslag vegna taugasjúkdóms og ekki víst að hann verði samur á ný
Miklar áhyggjur eru af heilsu Jamal Musiala, einnar skærustu stjörnu fótboltans, eftir að hann fékk aftur kast vegna taugasjúkdóms sem hefur sett mark sitt á líf hans og feril undanfarna mánuði.
Musiala, sem er 23 ára og spilar með stórliði Bayern Munchen, hneig tvisvar niður á knattspyrnuvellinum á aðeins fjórum dögum í ágúst. Í kjölfarið greindi hann frá því að hann væri í meðferð vegna taugasjúkdóms sem veldur stuttum flogaköstum
Nú greinir Bild frá því að Musiala hafi fengið flog síðasta mánudag. Það er annað bakslagið síðan hann hneig niður í æfingaleik gegn Heidenheim í sumar.
Ástandið hefur vakið miklar áhyggjur hjá Bayern Munchen og forráðamenn félagsins hafa opinberlega velt því fyrir sér hvort Musiala nái nokkurn tímann fyrri styrk, en kappinn var einn mest spennandi leikmaður heims fyrir ekki svo löngu.
Karl-Heinz Rummenigge, einn af forráðamönnum Bayern, hefur jafnframt sagt að félagið gæti þurft að endurskoða fjárhagslegar forsendur samnings leikmannsins, sem gildir til ársins 2030.
Musiala sneri aftur á völlinn í jafntefli gegn Köln á föstudag en óvissan um heilsu hans og framtíð er enn mikil.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗