Börn mannsins sem braut gegn Örnu hafa orðið fyrir áreiti – „Látum saklausa fjölskyldumeðlimi vera!“
Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 23. nóvember 2026 11:30
Arna Sif Haukstein Knútsdóttir. Aðsend mynd.
Arna Sif Haukstein Knútsdóttir steig nýlega fram í fréttaskýringaþættinum „Þetta helst“ á RÚV og greindi frá afar ógeðfelldri framkomu og áreitni manns í sinn garð í Dansfélagi Reykjavíkur.
Maðurinn, sem er virkur í samfélagi dansara, er á miðjum aldri og hefur þrisvar verið kærður til lögreglu fyrir ósæmilega hegðun í garð unglingsstúlkna í dansheiminum. Maðurinn reyndi að skrá sig í keppnishóp þar sem iðkendur eru á aldrinum 12 til 17 ára, en hann var afskráður úr hópnum. Reynt hefur verið að vísa honum úr Dansfélagi Reykjavíkur. Staðan er þannig núna að hann fær að vera í félaginu en er haldið utan keppnishópa.
Arna, sem er 22 ára í dag, var aðeins 17 ára gömul þegar maðurinn gerðist ágengur við hana í einkatímum. Meðal annars bauðst hann til að gerast sykurpabbi hennar og viðhafði við hana kynferðislegt tal, svo sem með því að spyrja hana út í BDSM-kynlíf.
„Hann býður mér að verða sykurpabbinn minn; að ég fái borgað fyrir að vera með honum,“ sagði Arna um samskipti sem áttu sér stað í seinasta tímanum sem hún sótti hjá manninum. Vildi maðurinn gera skriflegan samning um fyrirkomulagið og Arna lýsir því að hún hafi hreinlega frosið. Eftir tímann sagði hún móður sinni frá. Hún kærði manninn til lögreglu en árið 2023 var málið fellt niður.
Umfjöllunin í „Þetta helst“ um málið vakti mikla athygli en Arna hefur nú greint frá því að börn mannsins hafi orðið fyrir áreiti í kjölfar umfjöllunarinnar. Þetta þykir Örnu miður og gremst henni mjög að saklaus börn verði fyrir áreitni vegna gjörða föður síns.
Hún birti pistil um þetta í „Baráttuhópi gegn ofbeldismenningu“ á Facebook og veitti DV góðfúslega leyfi til að endurbirta pistilinn. Arna bendir á að hún hafi greint frá áreitni mannsins til að koma í veg fyrir ofbeldi en ekki til að auka það, eins og hafi því miður gerst.
Arna skrifar orðrétt:
„Ég fór í viðtal í útvarpsþáttinn “þetta helst” þar sem ég tjáði mig um mína reynslu á fyrrverandi danskennara mínum… margir hlustuðu á þann þátt og sáu einnig frétt sem kom um viðtalið. Mér finnst mjög gott að þetta hefur náð að dreifast og gott að loksins er hægt að vara við þessum manni.
Eitt sem mér finnst lélegt samt er að eftir að maðurinn var nafngreindur, meðal annars af mér, öðru utanaðkomandi fólki og greinum um hann, þá hef ég frétt það að börn geranda mins eru að verða fyrir áreitni vegna gjörðum mannsins. Mig langar að koma því á hreint að ég óska börnum geranda míns engu ills og mér þykir vænt um þau. Ekkert af börnum hans koma þessu máli við og einnig voru tvö þeirra undir aldri þegar ég verð fyrir honum og þau bara að fá að heyra af þessum ásökunum í fyrsta skipti núna í gegn um fjölmiðla og áreitni sem þau verða fyrir.
Mér finnst hrikalegt að saklaus börn eru að vera fyrir áreitni vegna gjörðum föður síns, þar sem það ber enginn ábyrgð á þeim gjörðum nema gerandinn sjálfur. Ég er að vara við manninum til þess að reyna að koma í veg fyrir ofbeldi en ekki auka það og mér finnst mikilvægt að við munum það öll að þó foreldrar ali upp börnin sín og börnin eru þeirra blóð, þá eru börnin ekki foreldrar sínir og bera enga ábyrgð á ákvörðunum foreldra sinna. Látum saklausa fjölskyldumeðlimi vera!“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗