Sá fyrsti frá 1969

Josh Giddey fór á kostum.

Josh Giddey fór á kostum. AFP/Jayden Mack

Jamal Murray skoraði 45 stig, það mesta hjá honum á tímabilinu, þegar Denver Nuggets vann Chicago Bulls 151:145 á útivelli eftir framlengingu í NBA-körfuboltanum í nótt.

Nikola Jokić bætti við 37 stigum, 18 fráköstum og 11 stoðsendingum og náði þar með sinni 202. þreföldu tvennu á ferlinum, sem er sjö frá meti Russells Westbrooks í deildinni.

Josh Giddey hjá Chicago skoraði 23 stig, tók 14 fráköst og gaf 22 stoðsendingar, sem er það mesta á ferli hans.

Hann varð fyrsti leikmaður Bulls síðan 1969 til að skora að minnsta kosti 20 stig og gefa 20 stoðsendingar í einum leik.

Svi Mykhailiuk setti niður tíu þriggja stiga körfur og skoraði 39 stig fyrir Utah Jazz, það mesta á ferli hans, en Dallas Mavericks sluppu með 116:114-sigur á útivelli. Cooper Flagg skoraði 28 stig, þar á meðal sigurvítin þegar 3,7 sekúndur voru eftir.

Úrslit næturinnar:

Atlanta Hawks 107:97 Detroit Pistons

Miami Heat 123:113 Oklahoma City Thunder

Chicago Bulls 145:151 Denver Nuggets, framlenging

Utah Jazz 114:116 Dallas Mavericks

Washington Wizards 116:96 Orlando Magic

New York Knicks 113:106 Indiana Pacers

Golden State Warriors 88:87 Boston Celtics

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab