Verður 90 ára í febrúar og afgreiðir 300 manns í hádeginu

Sveinn Friðfinnsson sker steik fyrir hádegisgesti Spírunnar á föstudögum. Hann verður níræður í febrúar á næsta ári en þegar mest lætur eru gestirnir allt að 350. mbl.is/Karítas

Sveinn Friðfinnsson matreiðslumeistari verður níræður í febrúar á næsta ári. Á föstudögum sker hann steik fyrir hádegisgesti Spírunnar, sem geta orðið 350 þegar mest lætur. Sjálfur lýsir hann vinnuframlaginu nokkuð hógværar.

„Ég er bara svona að dinglast með,“ segir Sveinn. „Á föstudögum er ég þó alltaf.“

Síðastliðinn föstudag voru gamlir starfsbræður meðal gestanna. Félagar í lávarðadeild Klúbbs matreiðslumeistara komu til að heiðra Svein fyrir störf hans og framlag til fagsins. Margir þeirra þekkja hann frá því hann kenndi þeim í Hótel- og matvælaskólanum í Sjómannaskólanum.

„Sveinn er nokkurs konar goðsögn í okkar augum,“ segir Lárus Loftsson matreiðslumeistari, einn félaganna.

„Við vorum bara að koma til hans og sýna að við erum ekki búin að gleyma honum. Hann er stórt nafn í okkar hópi.“

Lávarðadeild Klúbbs matreiðslumeistara. Í efri röð frá vinstri: Sigurður Hall, Hafdís Ólafsdóttir, Eiríkur Friðriksson, Þorvarður Óskarsson, Sigurður Einarsson, Kristján Sæmundsson, Axel Jónsson, Sveinbjörn Friðjónsson, Óskar Finnsson, Eiríkur Ingi Friðgeirsson og Rúnar Gíslason. Í fremri röð frá vinstri: Einar Árnason, Þórður Sigurðsson, Skúli Hansen, Sveinn Friðfinnsson, Ragnar Guðmundsson, Lárus Loftsson og Jakob Magnússon. mbl.is/Karítas

„Ég er af annarri öld en þeir“

Á Spírunni ræður Rúnar Gíslason, sonur Sveins, ríkjum. Sveinn tekur þó af allan vafa þegar hann er spurður hvort þeir eigi staðinn saman.

„Nei, nei, nei. Ég gæti ekki unnið með drengjunum mínum, elskan. Ég er af annarri öld heldur en þeir.“

Rúnar kom inn í líf hans með móður sinni og Sveinn þarf ekki mörg orð til að lýsa því hvernig það hafi tekist til.

„Hann bara fylgdi mömmunni og það var bara góður hlutur sem fylgdi henni, blessaður, eins og allt annað.“

Nú er Sveinn þó farinn að íhuga að láta gott heita. Aðspurður hvenær hann ætli að taka sína síðustu vakt á Spírunni svarar hann hugsi:

„Ég bara satt best að segja veit það ekki. En ég hugsa að ég verði ekki mikið meira en út þetta ár.“

Gamli Staðarskálinn honum kær

Að baki reynslu Sveins eru áratugir í eldhúsum landsins. Hann lærði á Hótel Borg og útskrifaðist í desember árið 1963. Hann starfaði meðal annars í Kaffihöllinni og Gildaskálanum og kenndi um skeið við Hótel- og matvælaskólann. Þar þurfti stundum að sinna fleiru en matreiðslukennslunni.

„Ég var meira að segja að kenna íslensku sem ég kann ekki sjálfur að skrifa almennilega,“ segir hann og hlær. 

Af vinnustöðunum er gamli Staðarskáli honum sérstaklega kær. Þar vann hann mikið á sumrin og minnist eigendanna og fjölskyldunnar sem rak staðinn með hlýju.

„Það var svona eins og að koma heim til sín að vinna fyrir fólkið sem átti gamla skálann.“

Með veislumat í ráðherrabústaðinn

Á námsárunum á Hótel Borg fór Sveinn gjarnan með veislumat upp í ráðherrabústað. Hann minnist þess að mikið hafi verið um veislur og maturinn komið frá eldhúsi hótelsins.

„Ég hef farið þó nokkuð margar ferðir með mat upp í ráðherrabústað til að gefa ráðherrunum okkar að borða,“ segir hann glettinn.

Spurður hvort einhver ráðherra hafi verið í sérstöku uppáhaldi svarar hann hlýlega:

„Elskan mín góð, það var gaman að þeim öllum.“

Frásögnin berst að því hvernig matvælum var haldið köldum áður fyrr. Sveinn rifjar upp að ís hafi verið höggvinn úr Reykjavíkurtjörn til kælingar, en tekur fram að því hafi verið löngu hætt þegar hann útskrifaðist árið 1963. Hann man einnig eftir ísklumpum sem Sænsk-íslenska frystihúsið við Skúlagötu frysti fyrir eldhúsið.

„Þeir frystu oft fyrir okkur klumpa sem við hjuggum svo niður til að geyma matvæli í.“

Mikilvægt að mæta glaður til vinnu

Spurður hverju hann sé stoltastur af á ferlinum nefnir hann ánægjuna af því að sinna starfinu vel.

„Ég held ég sé bara stoltastur af því að hafa sinnt mínu fagi vel og haft gaman af því og notið þess. Ég hef lagt mig fram um að vera glaður í vinnunni. Það skiptir öllu máli, að vera glaður og kátur í verkefnum dagsins, hver sem þau eru.“

En hverju þakkar hann að geta enn staðið við skurðarbrettið, að verða níræður?

„Heyrðu, nú verður mér mjög fátt um svör. Ekki get ég sagt að ég hafi lifað mjög heilsusamlegu lífi. Ég reykti í 50 ár og drakk brennivín eins og berserkur í gamla daga. Og vann eins og skepna. Og þetta er árangurinn.“

Skapið hafi þó sjaldan hlaupið með hann í gönur í eldhúsinu.

„Ég man nú eftir kannski tveimur skiptum sem ég var andskoti reiður í vinnunni. En við ræðum það ekkert, það er svo langt síðan.“

„Við erum ekki alveg farnir út úr dæminu“

Félagarnir sem heimsóttu Svein á föstudaginn eiga líka langa starfsævi að baki. Í lávarðadeildinni eru að mestu matreiðslumeistarar sem eru hættir reglulegri vinnu en hittast áfram, ferðast og ræða fagið.

Margir lærðu og störfuðu á stóru hótelunum, Hótel Sögu, Hótel Borg og Hótel Loftleiðum. Lárus segir tengslin sterk eftir áratuga kynni og samstarf.

„Við höldum hópinn, fundum einu sinni í mánuði og förum í ferðir og ýmislegt annað.“

Fyrir tveimur árum fór hópurinn meðal annars fjölmennur á Norðurlandaþing í Svíþjóð. Þegar þeir hittast heima er nóg að ræða, bæði úr eigin starfsævi og því sem er að gerast í veitingageiranum.

„Menn eru stoltir af sínum ferli og við erum bæði að hæla því sem er gert í dag og erum líka ekki alltaf ánægðir. Þetta er bara eins og gengur. Við höfum svo mikinn áhuga á matreiðslunni.“

Þeir taka líka enn til hendinni, meðal annars við veislur og í þágu góðgerðarmála.

„Við erum ekki alveg farnir út úr dæminu. Við höfum eldað á Kótelettukvöldi Samhjálpar og fleiri góðum viðburðum,“ segir Lárus.

Hann lærði sjálfur í þrjú ár á Múlakaffi og eitt ár á Hótel Sögu og tók prófið 1968. Hann starfaði á Múlakaffi í 17 ár og rak Veitingaþjónustu Lárusar Loftssonar í 30 ár. Áherslan hafi alla tíð verið á að vanda verkin.

„Þú verður að vera ánægður sjálfur með matinn ef þú ætlar að bjóða öðrum að borða hann.“

Sofna með matreiðslubækur í höndunum

Áhuginn á faginu nær líka til næstu kynslóða. Lávarðarnir fylgjast grannt með íslenska kokkalandsliðinu á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg og mættu á æfingakvöldverði þess í aðdraganda keppninnar. Þeir skiptu sér niður á kvöldin og lögðu mat á það sem borið var fram.

„Við höfðum kost á því að segja hvernig okkur fyndust hlutirnir og gerðum athugasemdir ef við töldum að eitthvað þyrfti að bæta,“ segir Lárus.

Gullverðlaunin fyrir þriggja rétta kvöldverð liðsins á laugardaginn komu honum ekki á óvart.

„Þetta er ofsalega duglegt ungt fólk og hefur alveg ótrúlegan áhuga. Þau nánast sofna með matreiðslubækur í höndunum.“

Hann dáist sérstaklega að því sem liðsmenn leggja á sig samhliða fullri vinnu. Undirbúningurinn hafi verið gríðarlegur. Þótt hann hafi mikla trú á liðinu vill hann fara varlega í að bera það saman við landslið fyrri ára.

„Maður verður alltaf að miða við ákveðinn tíma í sögunni.“

Sveinn fylgist sömuleiðis vel með og hefur trú á liðinu. Aðstaðan sem matreiðslunemar hafa í dag minnir hann hins vegar lítið á það sem beið hans og samnemenda hans í Sjómannaskólanum.

„Þar var ein gömul sjö hellna eldavél, ein stór steikarpanna, ónýtt bakarí, ónýtur kælir og ónýtur frystir. Og góðir menn sem kenndu okkur.“

Tekur mannleg samskipti fram yfir tölvur

Aðspurður um hvernig sé að lifa á tækniöld segir Sveinn það ágætt, hann kunni að svara símanum og hringja úr honum en að öðru leyti reyni hann að nota hann sem minnst.

„Mér finnst mannleg samskipti dásamleg ennþá,“ segir hann og brosir. 

Hann hvetur blaðamann til að koma og fá sér steik á föstudegi. Þegar blaðamaður segist vera á fréttavakt á þeim dögum, er Sveinn fljótur að bjóða fram aðstoð sína.

„Heyrðu, ég bara hringi og bið um frí fyrir þig, góða mín. Það væri gaman að sjá ykkur öll í það minnsta einu sinni áður en ég hætti.“

Sveinn nýtur hvers augnabliks í lífinu og segir það lykilinn að lífshamingjunni. 

„Ég ætla að fara að fá mér meira kaffi núna þegar við erum búin að ræða saman. Konan er í hárgreiðslu og þá fær maður sér aukabolla, sjáðu til.“

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab