Mörg hundruð skólum hótað
Erlent | AFP | 23.11.2026 | 11:19
Undanfarnar vikur hefur fjöldi falskra sprengjuhótana borist skólum víða í Evrópu. Ljósmynd/Colourbox
Meira en 450 skólum í þýska sambandslandinu Baden-Württemberg bárust sprengjuhótanir í tölvupósti, að sögn lögreglu.
Fjölmargir skólar í Þýringalandi, sem er eitt af sambandslöndum Þýskalands, fengu einnig slíkar hótanir.
Lögregla greindi frá þessu í dag og sagði ekkert benda til þess að raunveruleg hætta væri á ferðum. Lögreglan í Þýringalandi taldi hótanirnar sem bárust skólum þar ekki trúverðugar.
Undanfarnar vikur hefur fjöldi falskra sprengjuhótana borist skólum víða í Evrópu.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗