Lætur ekki ferðakvíða stoppa sig

Karen Ómarsdóttir er stemmningskona. Hér er hún í París með dætrum sínum. Ljósmynd/Aðsend

Karen Ómarsdóttir er reynslumikill verslunarstjóri en hún hefur starfað í tæp 30 ár í verslunarrekstri, lengst af í tísku en nú síðast hjá Nespresso á Íslandi. Karen hefur gaman af ferðalögum og elskar að lenda í nýjum ævintýrum. 

„Ég var nú kannski ekki mikið að ferðast á yngri árum, þó ég hafi auðvitað farið töluvert til útlanda vegna starfsins míns. Það var svo fyrir svona tíu til 15 árum sem ég fór að ferðast meira í fríum og þá kviknaði smá ferða baktería,“ segir Karen þegar hún er spurð út í ferðaáhugann. 

Karen lætur ekkert stoppa sig þegar kemur að því að upplifa ný ævintýri. 

„Ég hef reyndar alltaf verið með smá ferðakvíða, alveg frá því ég var ung og finn alveg enn fyrir honum stundum. En ég hef lært að láta hann ekki stoppa mig í að upplifa nýja og skemmtilega staði. Ég held að það sé einmitt það sem ferðalögin hafa kennt mér — að stíga aðeins út fyrir þægindarammann og láta ekki óttann ráða ferðinni.“

Ferðalögin hafa kennt Karen að fara út fyrir þægindarammann.

Ferðalögin hafa kennt Karen að fara út fyrir þægindarammann. Ljósmynd/Aðsend

Hvernig ferðalögum ertu hrifin af?

„Ég er hrifin af alls konar ferðalögum og finnst gaman að prófa eitthvað nýtt. Borgarferðir, sólarlönd og alls konar skemmtilegar upplifanir, til dæmis tónleika og viðburði. Fyrir mér snýst þetta líka mikið um góðan félagsskap, að ferðast með fjölskyldu og vinum og skapa góðar minningar saman. Mér finnst líka gaman og mikilvægt að hafa smá hreyfingu með í ferðalögunum, skoða mig um skokkandi og fótgangandi, kíkja í fallega garða, já svo aðeins í verslanir þess á milli. Á þessu ári fór ég í mína fyrstu skíðaferð og ég elskaði það. Ég er eiginlega til í flest, svo lengi sem ferðalagið býður upp á skemmtilegar upplifanir og góðar stundir.“

Karen fór nýlega í skíðaferð og ætlar aftur.

Karen fór nýlega í skíðaferð og ætlar aftur. Ljósmynd/Aðsend

Áttu uppáhaldsborg?

„Mér finnst París, Mílanó og Barcelona allar vera ofarlega á listanum. Þær eru svo fallegar og það er alltaf gaman að rölta um göturnar, skoða fallegar byggingar, finna sér kaffihús eða setjast úti með góðan drykk. Ég elska að þurfa ekki að hugsa um tímann og horfa á mannlífið og njóta þess að vera til. Það er eitthvað svo heillandi við þessar borgir. Kaupmannahöfn á líka stóran stað í hjartanu, enda býr yngri dóttir mín þar. Það er því alltaf sérstaklega gott og gaman að koma þangað og njóta samverunnar með henni.“

Borgir í Evrópu hella Karen.

Borgir í Evrópu hella Karen. Ljósmynd/Aðsend

Hvar finnst þér skemmtilegast að versla í útlöndum?

„Mér hefur alltaf fundist gaman að versla í Kaupmannahöfn og London, þar er svo mikið úrval. París kom mér líka skemmtilega á óvart og svo kom Mílanó sterkt inn eftir síðustu ferð. Þar er svo mikið af fallegum verslunum og tískan alls staðar í kringum mann. Ég gæti alveg hugsað mér að fara þangað aftur.“

Mílanó er borg sem er í uppáhaldi hjá Karen. Þar er hægt að rölta um göturnar og borða góðan mat. Búðirnar skemma heldur ekki fyrir. Ljósmynd/Aðsend

Hvernig pakkar þú þegar þú ferðast?

„Ég hef alltaf reynt að pakka létt en það hefur nú gengið misvel. Tók voða oft alltof mikið með mér en í dag finnst mér ekkert mál að ferðast bara með handfarangur. Það fer auðvitað svolítið eftir því í hvernig ferð ég er að fara í og hversu löng ferðin er.

Ég reyni að hugsa þetta þannig að ég geti notað hlutina við sem flest. Tek yfirleitt eina hæla og strigaskó, buxur og jakka sem ég get dressað upp eða niður og svo bara helstu snyrtivörurnar. Svo tek ég alltaf með mér magnesíum, sölt og steinefni – mjög gott að hafa með í ferðalögum.“

Karen er alltaf smart þegar hún ferðast. Hún hugsar vel út í hvaða föt hún tekur með sér og hvernig þau nýtast í ferðinni. Ljósmynd/Aðsend

Hvert er eftirminnilegasta ferðalagið sem þú hefur þú farið í og af hverju?

„Madeira heilsuferð með Gerðu InShape var alveg ferð fyrir mig. Fullt af hreyfingu, fjallgöngum, geggjað hótel, bátsferð, smá verslun og ekki síst frábær félagsskapur. Allar aðalskvísurnar í bænum saman – þetta var 10 af 10.

París með dætrum mínum var líka ógleymanleg ferð. Að skoða borgina, fara á sýningu, versla, hlæja, eiga góð trúnó og skapa minningar saman sem við eigum eftir að brosa yfir um ókomin ár. Það er eitthvað alveg sérstakt við svona ferðir með stelpunum mínum.

Portúgal með kærastanum var líka dásamleg á sinn hátt. Við vorum með bíl í Luz og keyrðum á milli lítilla bæja, fórum í göngur, skokkuðum og skoðuðum um leið. Nutum þess að slaka á við sundlaugina og á ströndinni. Ég elska svona ferðir þar sem maður blandar saman hreyfingu, upplifunum og rólegum stundum í sólinni. Ég held að það sé einmitt það sem gerir ferðalögin svona dýrmæt – að upplifa eitthvað nýtt, njóta lífsins og skapa minningar með fólkinu sínu.“

Karen elskar að upplifa eitthvað nýtt þegar hún ferðast.

Karen elskar að upplifa eitthvað nýtt þegar hún ferðast. Ljósmynd/Aðensd

Hvar hefur þú fengið besta matinn?

„Ég held ég verði að segja á Ítalíu. Ég er samt ekki mikið fyrir að eltast sérstaklega við mat, heldur finnst mér heildarupplifunin skipta máli. Góð stemning, fallegt umhverfi og matur sem er góður – þá er ég ánægð. Donna og Delphine í Kaupmannahöfn eru til dæmis staðir sem mér finnst sameina þetta allt svo vel. Þar er bæði stemningin og umhverfið alveg jafn mikilvæg og maturinn sjálfur.“

Karen dreymir um að fara til Santorini.

Karen dreymir um að fara til Santorini. Ljósmynd/Aðsend

Eru einhver ferðlag fram undan í vetur?

„Ég var nú bókstaflega að koma frá London þar sem við fórum átta dömur úr fjölskyldunni saman á ABBA í O2-höllinni. Vá, þvílíkt partý. Ég mæli svo sannarlega með þessari upplifun. Annars er skíðaferð til Ítalíu á dagskrá í febrúar með vinahópnum, sem verður örugglega geggjað. Svo er aldrei að vita nema að ég skelli mér í eina ferð til Kaupmannahafnar inn á milli til að hitta dóttur mína.“

Karen finnst gaman í hreyfiferðum og fór nýlega í eina slíka með þjálfaranum Gerðu kennda við In Shape. Ljósmynd/Aðsend

Hvert dreymir þig um að fara?

„Mig hefur alltaf dreymt um að fara til Santorini á Grikklandi. Það er einn af þessum stöðum sem ég verð bara að láta verða að veruleika á næstu árum. Svo langar mig mikið í aðra góða heilsuferð með skemmtilegum hópi. Það væri til dæmis mjög gaman að fara til Króatíu í svona ferð, hef aldrei komið þangað.“

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅