Engar grunsemdir um íkveikju
Engar grunsemdir eru að svo stöddu um íkveikju í tengslum við brunann sem varð í húsbíl á Sævarhöfða í Reykjavík í gær. Bruninn er til rannsóknar hjá lögreglu.
Þetta segir Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
Rafmagnsleysið til umræðu
Hún segir málið nýtt og að enn sé unnið úr gögnum. Ekki liggi enn fyrir hvað olli brunanum.
Spurð hvort bruninn kunni að tengjast rafmagnsleysinu á svæðinu og því að íbúar þurfi hugsanlega að nýta aðrar leiðir til upphitunar segir Hjördís að lögreglan tjái sig ekki um það að svo stöddu
Eldur kom upp í húsbílnum um hádegisbil í gær. Enginn var í bílnum þegar eldurinn kviknaði og engan sakaði.
Reykjavíkurborg hefur lokað fyrir vatn og rafmagn á svæðinu. Borgarráð vísaði 12. nóvember frá tillögu um að opna aftur fyrir vatn og rafmagn fyrir hjólabúa yfir vetrarmánuðina.
Hjólhýsabyggðin á Sævarhöfða hefur verið mikið til umræðu að undanförnu vegna lokunar á vatni og rafmagni. mbl.is/Eggert Jóhannesson
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

