NASA fræðir fólk á Snæfellsnesi
Fjórir sérfræðingar NASA eru staddir á Snæfellsnesi til að fræða heimamenn um heima og geima. Konurnar fjórar, Nicole Rayl, Denise Hill, Kelly Korreck og Vanessa Thomas, hafa ólíka og fjölbreytta reynslu úr heimi vísinda, rannsókna og vísindamiðlunar.
Þær halda fyrirlestra í öllum skólum á Snæfellsnesi og í þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi þessa dagana.
Ragnhildur Sigurðardóttir þjóðgarðsvörður Snæfellsjökulsþjóðgarðs segir við Morgunblaðið að samstarfið við NASA hafi fyrst komið upp í sambandi við almyrkvann fyrr á árinu, þegar sérfræðingar NASA voru á Íslandi og samstarf tókst með stofnuninni, þjóðgarðinum og Snæfellingum. Þetta sé fyrsta skref þess.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗