Braut ítrekað á fyrrverandi kærustu

Dómurinn taldi að þrjár líkamsárásir, húsbrot á heimili konunnar og skemmdir á bíl sem hún hafði til umráða hefðu í heild skapað viðvarandi ógnarástand sem ógnaði heilsu hennar og velferð. Ljósmynd/Colourbox

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í níu mánaða fangelsi fyrir ítrekað ofbeldi gegn fyrrverandi kærustu sinni og fyrir vopnalagabrot.

Sex mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir til þriggja ára. Manninum er jafnframt gert að greiða konunni rúma milljón króna í miska- og skaðabætur.

Dómurinn taldi að þrjár líkamsárásir, húsbrot á heimili konunnar og skemmdir á bíl sem hún hafði til umráða hefðu í heild skapað viðvarandi ógnarástand sem ógnaði heilsu hennar og velferð.

Dómurinn var kveðinn upp 9. nóvember. 

Kallaði á hjálp frammi á gangi

Í apríl 2024 tók maðurinn konuna ítrekað hálstaki, sló hana og meinaði henni að fara úr herbergi á heimili hans. Konan náði að senda móður sinni skilaboð og móðirin gerði lögreglu viðvart. Dómurinn taldi frásögn konunnar fá stoð í læknisvottorði og ljósmyndum af áverkum hennar.

Í júlí sama ár sló maðurinn konuna í andlitið, reif í hár hennar og tók hana hálstaki. Hún leitaði á bráðamóttöku sama dag. Dómurinn taldi frásögn hennar trúverðuga og samræmast gögnum um áverka hennar.

Þriðja árásin átti sér stað á gististað í Reykjavík í ágúst. Á upptöku úr eftirlitsmyndavél sást konan hlaupa fram á gang og kalla á hjálp. Þar sást maðurinn bera hana aftur inn í herbergið gegn vilja hennar.

Dómurinn taldi árásina sannaða en taldi ósannað að maðurinn hefði sparkað í höfuð konunnar þar sem hún lá á gólfinu eða tekið hana hálstaki með þeim afleiðingum að hún ætti erfitt með andardrátt og missti meðvitund. Árásin féll því undir ákvæði hegningarlaga um brot í nánu sambandi, eins og ákæruvaldið hafði byggt á til vara.

Braut rúður á heimili og í bíl

Í september 2024 braut maðurinn rúðu á bakdyrum heimilis konunnar og fór þar inn án leyfis. Í júlí 2025 braut hann framrúðu í bíl sem hún hafði til umráða. Dómurinn taldi bæði atvikin hluta af brotunum í nánu sambandi. Vopnalagabrotið varðaði stunguvopn sem fannst við leit á manninum á lögreglustöð.

Við ákvörðun um að skilorðsbinda hluta refsingarinnar leit dómurinn til þess að maðurinn hefði ekki áður sætt refsingu, að nokkuð væri liðið frá atvikunum og að hann hefði játað hluta háttseminnar.

Tekjutapskröfu vísað frá

Konan krafðist rúmlega níu milljóna króna í bætur. Dómurinn dæmdi henni eina milljón króna í miskabætur og 10.650 krónur vegna tveggja koma á bráðamóttöku.

Við ákvörðun miskabóta leit dómurinn meðal annars til afleiðinga brotanna. Samkvæmt gögnum frá sálfræðingi var konan með alvarlega áfallastreituröskun.

Upphaflega ákæran var afturkölluð og ný gefin út með breyttri bótakröfu konunnar og nýrri kröfu eiganda bílsins.

Dómurinn taldi að skilyrði til að bæta kröfunum við á því stigi hefðu ekki verið uppfyllt. Hann vísaði því frá kröfu konunnar um tæpar 1,1 milljón króna vegna tekjutaps og 100 þúsund króna kröfu bíleigandans vegna rúðubrotsins.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab