Eignaðist sitt þriðja barn 63 ára gamall

Quentin Tarantino og ísrealeska söngkonan Daniella Pick eiga þrjú börn saman. AFP

Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Quentin Tarantino og eiginkona hans, Daniella Pick Tarantino, hafa eignast sitt þriðja barn saman. Hjónin eignuðust dreng.

Talsmaður Tarantino staðfesti gleðitíðindin í samtali við bandaríska tímaritið People.

Tarantino, sem er 63 ára, og Daniella, 43 ára, eiga fyrir tvö börn, soninn Leo, sex ára, og dótturina Adriönu, fjögurra ára.

Kynntust í Ísrael árið 2009

Ástarsaga hjónanna hófst árið 2009 þegar Tarantino var staddur í Ísrael við kynningu á kvikmynd. Þar kynntist hann Daniellu, sem er söngkona og fyrirsæta. Þau hófu samband en leiðir þeirra skildu nokkrum árum síðar.

Árið 2016 tóku þau aftur saman og trúlofuðu sig sumarið 2017. Í nóvember árið eftir gengu þau í hjónaband við látlausa og persónulega athöfn á heimili sínu í Los Angeles.

Fyrsta barn þeirra, sonurinn Leo, kom í heiminn í febrúar 2020 og dóttirin Adriana fæddist í júlí 2022. 

Einn þekktasti leikstjóri Hollywood

Tarantino er einn þekktasti kvikmyndaleikstjóri samtímans og hefur á ferli sínum leikstýrt fjölmörgum vinsælum og margverðlaunuðum kvikmyndum. Þar á meðal eru Pulp Fiction, Kill Bill, Inglourious Basterds, Django Unchained og Once Upon a Time in Hollywood.

Daniella hefur einnig starfað í skemmtanabransanum og fetað í fótspor föður síns, ísraelsku poppstjörnunnar Svika Pick, sem var þekktur undir viðurnefninu „The Maestro“. Hún kom meðal annars fram ásamt systur sinni, Sharona, undir nafninu Pick Sisters áður en hún hóf sólóferil.

Með fæðingu litla drengsins eru börnin á heimili Tarantino-hjónanna nú orðin þrjú.

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab