Keane gagnrýndi Neville: Þá verð ég brjálaður
Roy Keane gagnrýndi fyrrverandi liðsfélaga sinn Gary Neville fyrir að gefa í skyn að 4:0-tap Manchester United gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta hefði verið ásættanlegt eftir að Leny Yoro var rekinn snemma af velli.
„Ef ég heyri lýsendurna segja einu sinni enn að 4:0 sé ekki svo slæmt og að liðið hafi líka spilað manni færri, þá verð ég brjálaður,“ sagði Keane á Sky Sports.
„Hefur það aldrei gerst að lið hafi náð góðum úrslitum þrátt fyrir að vera aðeins með tíu leikmenn? Það er alveg hægt.“
Keane krafðist þess að leikmennirnir öxluðu meiri ábyrgð. „Mér fannst United algjörlega ömurlegt. Liðið var ráðalaust og spilaði mjög illa.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗