Allur minnihlutinn á móti bókun 35

Utanríkismálanefnd Alþingis hefur afgreitt frumvarp utanríkisráðherra um bókun 35 út úr nefnd við andmæli minnihlutans. mbl.is/Eyþór

Allir fulltrúar minnihlutans í utanríkismálanefnd Alþingis lögðust gegn því á fundi nefndarinnar í morgun að frumvarp utanríkisráðherra um bókun 35 við EES-samninginn yrði afgreitt úr nefndinni. Það var eftir sem áður gert og frumvarpið gengur nú til 2. umræðu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, lagði fram bókun fyrir hönd minnihlutans þar sem afgreiðslunni var mótmælt, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins á Alþingi.

Afstaða stjórnarandstöðunnar hefur verið eilítið mismunandi til málsins og stöku þingmenn hennar á báðum áttum, en svo virðist sem málshöfðun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) gegn Íslandi vegna innleiðingar bókunarinnar hafi þjappað henni saman um málið.

Nefndin hefur haft frumvarpið til meðferðar frá 6. október, en meirihlutinn ákvað nú að ljúka umfjöllun um það þrátt fyrir andstöðu allra stjórnarandstöðuflokkanna.

Afgreiðslan ótímabær

Að því er heimildir blaðsins herma taldi minnihlutinn óverjandi að afgreiða málið við svo búið, það væri einfaldlega ekki tímabært. Utanríkisráðherra hefði ráðið sér verjendur, en þeir hefðu sagt á nefndarfundi fyrir skömmu að utanríkismálanefnd yrði haldið vel upplýstri um undirbúning málsins. Fráleitt væri að nefndin lyki umfjöllun áður en hún hefði fengið nokkuð meira að vita um málatilbúnað Íslands.

Þá var bent á það að átök um málið í þingsal myndi óhjákvæmilega skaða málsvörn Íslands, ef ráðherrar og þingmenn héldu þar uppi sömu sjónarmiðum og sækjendur ESA í andstöðu við málflutning verkenda Íslands.

Ákalli Þorgerðar hafnað

Niðurstaðan er athyglisverð í ljósi þess að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafði sérstaklega leitað eftir stuðningi stjórnarandstöðunnar við frumvarpið eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið í ágúst.

Þá hafði ráðherra meðal annars hvatt Sigmund Davíð og Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins, til að gerast fyrstu flutningsmenn frumvarpsins til marks um þverpólitíska samstöðu um EES-samninginn. Nú blasir við að sú samstaða hefur ekki náðst.

Fram kom á fundi utanríkismálanefndar um málið í liðinni viku, að stjórnvöld hafi ákveðið að taka til fullra varna í málinu fyrir Íslands hönd. Áður hafði utanríkisráðherra lagt fram minnisblað, þar sem tvær leiðir voru sagðar færar: að verjast að kappi eða verða við kröfu ESA, en þá var ekki tekin afstaða til þess hvora leiðina ætti að fara.

Forsendur frumvarpsins brostnar

Líkt og fram kom í frétt Morgunblaðsins í morgun segir Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður, að forsendur frumvarpsins séu brostnar. Helstu rökin fyrir því hefðu verið að Ísland héldi forræði á málinu, en það hefði breyst við málshöfðun ESA hinn 30. september. Nú hefðu íslensk stjórnvöld jafnframt ákveðið að taka til fullra varna fyrir EFTA-dómstólnum.

Hildur telur að samþykkt frumvarpsins geti beinlínis skaðað málstað Íslands.

„Sé það opinber afstaða Alþingis að Ísland hafi brotið gegn EES-samningnum er líklegt að það verði notið gegn Íslandi fyrir EFTA dómstólnum sem viðurkenning á broti Íslands.“ Hún segir eðlilegast að leyfa dómsmálinu að hafa sinn gang og einbeita sér að vörnum Íslands.

Umdeilt mál

Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði svonefnd forgangsregla, sem kveður á um að íslensk lagaákvæði sem innleiða skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum gangi framar öðrum almennum lögum, stangist þau á og verði ekki samræmd með túlkun. Alþingi geti þó mælt sérstaklega fyrir um annað.

Málið hefur verið umdeilt, meðal annars vegna ágreinings um hvort slík forgangsregla samrýmist stjórnarskránni. ESA höfðað mál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum í lok september vegna þess að stofnunin telur Ísland ekki hafa innleitt bókun 35 með fullnægjandi hætti. Því hefur verið andæft á þeirri forsendu að í bókuninni sé jafnframt kveðið á um að ekkert framsal löggjafarvalds felist í henni, þeim skilningi hafi ekki verið mótmælt áratugum saman.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab