Sjáðu þegar Úkraínumenn sökktu rússnesku herskipi

Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur staðfest að úkraínskar hersveitir hafi staðið að árás á rússneskt herskip við strendur Líbíu í gær.

Skipinu var sökkt og hefur Úkraínuforseti birt myndskeið sem sýnir árásina. Breska blaðið The Guardian greinir frá þessu í dag.

Árásin var gerð á rússneska herskipið Merkury, sem var við flotastöð í hafnarborginni Benghazi í Líbíu. Að sögn Selenskís beittu Úkraínumenn sjö úkraínskum sjódrónum við árásina og tókst að sökkva skipinu þrátt fyrir tilraunir Rússa til að verjast.

Merkury var eitt af nýjustu herskipum Rússa og var tekið í notkun árið 2023. Samkvæmt úkraínsku öryggisþjónustunni, SBU, tilheyrði það Svartahafsflotanum og var meðal annars notað til að fylgja rússneskum skipalestum. Þyrla af gerðinni Ka-27 var einnig um borð og sökk með skipinu, að sögn SBU.

Selenskí staðfesti jafnframt að Úkraínumenn hefðu ráðist á rússneska flutningaskipið MV Angara, sem hann segir hafa verið notað til vopnaflutninga. Hann segir því einnig hafa verið sökkt.

Gervihnattamyndir sýna herskipið í höfninni í Benghazi fyrir árásina og á hliðinni eftir sprengingu.

Rússnesk stjórnvöld hafa ekki staðfest frásögn Úkraínumanna. Talsmaður stjórnvalda í Kreml sagði að rússneska varnarmálaráðuneytið myndi veita upplýsingar um málið.

An exemplary Ukrainian operation in response to Russia’s war. I thank the warriors of the Security Service of Ukraine and all our Defense Forces of Ukraine who took part in carrying out these tasks. I received detailed briefings on the operation’s steps yesterday and today – the targets we set were achieved. It all took place off the coast of Libya. Our warriors deployed seven Ukrainian-made naval drones. Despite all the enemy’s efforts to counter the attack, the Russian corvette Merkury was sunk. It’s one of their newest ships, commissioned in 2023, during the full-scale war. A Ka-27 combat helicopter was also destroyed along with the corvette. Our second target was the Russian dry cargo vessel MV ANGARA, which the enemy used to transport weapons. Result: target hit. We continue our operations in designated waters. We are responding to Russia’s aggression. We are developing Ukrainian weapons. Glory to Ukraine!

— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) November 23, 2026

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab