Erfitt að rekja slóð tölvuþrjóta

Magni R. Sigurðsson forstjóri netöryggisveitarinnar CERT-IS.

Magni R. Sigurðsson forstjóri netöryggisveitarinnar CERT-IS. Samsett mynd/Ljósmynd/Aðsend/Colorbox

Það verður flókið og tímafrekt ferli að rekja slóð tölvuþrjóta sem gerðu netárás á íslenska vefhýsingarfyrirtækið 1984 ehf. að sögn Magna R. Sigurðssonar, forstjóra netöryggissveitarinnar CERT-IS.

„Sérstaklega núna með tilkomu gervigreindar þá verður gríðarlega erfitt að rekja þessi spor,“ segir Magni í samtali við Morgunblaðið.

„Það er erfiðara að átta sig á því hvort um hæfan glæpahóp sé að ræða eða mögulega ríkisstuddan ógnarhóp en það er nokkuð sem við höfum verið að greina og rannsaka.“

1984 varð fyrir umfangsmikilli tölvuárás erlendra tölvuþrjóta á dögunum, en tilgangur árásarinnar virðist hafa verið að eyðileggja vefsíður til stuðnings Palestínu.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab