Þrjár íslenskar á lokaúrtökumótið

Hulda Clara Gestsdóttir.

Hulda Clara Gestsdóttir. mbl.is/Ólafur Árdal

Hulda Clara Gestsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Andrea Bergsdóttir hafa allar tryggt sér sæti á lokaúrtökumóti Evrópumótaraðar kvenna í golfi í desember eftir að tímabili LET Access-mótaraðarinnar lauk á Spáni á föstudag.

Andrea varð efst þeirra á Islantilla Open, lokamóti tímabilsins, þar sem hún deildi þrettánda sæti á pari samtals. Hún lék fyrstu tvo hringina á 72 og 68 höggum og var jöfn í öðru sæti fyrir lokahringinn. Hann lék hún á 76 höggum.

Ragnhildur lauk leik á fimm höggum yfir pari eftir hringi upp á 76, 74 og 71 högg. Huldu Clöru vantaði tvö högg til að komast í gegnum niðurskurðinn.

Hulda Clara varð efst íslensku kylfinganna á stigalistanum, í níunda sæti á sínu fyrsta tímabili sem atvinnukylfingur. Hún vann Czech Ladies Challenge í júní og varð alls fimm sinnum á meðal tíu efstu. Ragnhildur endaði í 22. sæti stigalistans og Andrea í því 23.

Sjö efstu kylfingar stigalistans tryggðu sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni fyrir næsta tímabil. Þær sem enduðu í 8.–32. sæti komust beint á lokaúrtökumótið þar sem íslenski þremenningurinn freistar þess að tryggja sér sæti á mótaröðinni.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab