Vilja afskrá Klappir úr kauphöll
Stjórn Klappa samþykkti á stjórnarfundi fyrir helgi að leggja til við hluthafa félagsins að samþykkja afskráningu hlutabréfa félagsins úr viðskiptum á Nasdaq First North markaðnum í Kauphöll Íslands.
Þetta er annað félagið sem tilkynnir um fyrirætlanir um afskráningu úr Kauphöllinni á viku, en í síðustu viku var einnig greint frá því að eigendur Solid Clouds áformuðu að afskrá félagið.
Bæði Solid Clouds og Klappir eru skráð á First North vaxtamarkaðinn, en þar eru í heild skráð fimm félög í dag. Auk fyrrnefndra félaga eru það Icelandic Salmon, Kaldvík og Sláturfélag Suðurlands. Með afskráningu félaganna tveggja verða því aðeins þrjú félög skráð á First North markaðinn.
Í tilkynningu segir að ákvörðun stjórnarinnar byggi fyrst og fremst á núverandi aðstæðum á hlutabréfamarkaði og takmörkuðum stefnumótandi ávinningi af áframhaldandi skráningu á First North Growth Market Iceland. Með afskráningu gæti félagið dregið úr kostnaði og reglubyrði og þannig nýtt fjármuni sína með skilvirkari hætti.
„Að auki telur stjórn félagsins að afskráning af Nasdaq First North Iceland sé heppilegasti kosturinn til að styðja betur við næstu skref í fjármögnunarferli félagsins og mögulega skráningu í Svíþjóð. Að mati stjórnarinnar myndi afskráning veita Klöppum aukinn sveigjanleika til að afla nýs hlutafjár og kanna möguleika á stefnumótandi viðskiptum sem gætu skapað núverandi hluthöfum tækifæri. Stjórnin telur því að fyrirhuguð afskráning sé bæði félaginu og hluthöfum þess fyrir bestu,“ segir í tilkynningunni.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗