Fengu óvænta hjálp frá svartri tík við Helgufoss – „Eins og álfur“
Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 23. nóvember 2026 10:30
Tíkin leiðbeindi Toni og fjölskyldu hennar að Helgufossi og til baka. Myndir/Instagram
Bandarískir ferðamenn í göngu fengu óvænta hjálp frá lausum hundi á göngu um Mosfellssveit. Fór hann hvergi frá þeim og leiddi þá rétta leið að Helgufossi.
Blaðið The Dodo greinir frá þessu.
Bandarískir göngumenn, Toni Carr og fjölskylda hennar, fengu óvænta hjálp frá lausri svartri tík þegar þeir voru á gangi í Mosfellssveit. Varð gangan að nokkurs konar ævintýri og veltu þeir því fyrir sér hvort að tíkin væri álfur. En hún hélt sig nálægt þeim og leiddi þá rétta leið að Helgufossi.
Toni greinir frá því að tíkin hafi skyndilega birst upp úr þurru. Hún var í góðum holdum, með ól og virtist vön á svæðinu. Það kom Toni samt á óvart að hún kom til hópsins og hélt sig nálægt honum alla leiðina. Það sem meira er hún var ekki aðeins að fylgja hópnum heldur var hún að leiða hann. Hún var að sýna þeim réttu leiðina.
„Á einum tímapunkti fórum við út af slóðinni og yfir á mosann, en tíkin fór að reka okkur aftur inn á slóðina. Eftir þetta grínuðumst við með það að við myndum bara fylgja henni,“ segir Toni.
Í klukkutíma við fossinn
Gönguleiðin með fram Köldukvísl að Helgufossi er um fimm kílómetrar og tíkin fylgdi þeim bróðurpartinn af þeirri leið. Þau nutu landslagsins á leiðinni og í hvert skipti sem þau stoppuðu til að taka sér stutta pásu þá beið tíkin eftir þeim. Þegar þau fóru aftur af stað hélt hún áfram að leiða hópinn.
Toni og fjölskylda hennar urðu ekki fyrir vonbrigðum þegar þau komu að fossinum og hún segir að þessi reynsla hafi verið betri og einstakari út af svörtu tíkinni.
„Við dvöldum við fossinn í um klukkutíma og tíkin var með okkur allan tímann,“ segir Toni. „Hún var mjög sátt að sitja og slappa af með okkur þar sem við nutum íslensku náttúrufegurðarinnar.“
Vaktin ekki búin
Þegar fjölskyldan hélt aftur heim fór tíkin á sinn stað fyrir framan þau og leiddi þau til baka. Alla leið að bílastæðinu. Við ferðalok þökkuðu þau henni fyrir en þá tóku þau eftir því að hennar vakt var ekki lokið.
„Þegar við komum aftur til baka sáum við par sem var að fara af stað. Eftir að við höfðum kvatt tíkina tók hún á rás á eftir þeim!“ segir Toni. Án nokkurs vafa hafi þessi gönguferð verið sú minnisstæðasta í Íslandsferðinni. „Þessi tík var eins og álfur,“ segir hún. „Áttum við að gefa henni þjórfé?“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗