Selja Blikastaðalandið á rúma 15 milljarða
Kaupin eru gerð með fyrirvara um fjármögnun hins sérhæfða sjóðs. mbl.is/Árni Sæberg
Landey ehf., dótturfélag Arion banka hf., hefur samið við Íslensk verðbréf hf., fyrir hönd óstofnaðs sérhæfðs sjóðs, um kaup sjóðsins á öllu hlutafé Landeyjar í Blikastaðalandi ehf., sem á og þróar Blikastaðaland í Mosfellsbæ.
Í tilkynningu frá Arion banka segir að kaupverðið sé 15,6 milljarðar króna en kaupin eru gerð með fyrirvara um fjármögnun hins sérhæfða sjóðs.
Ráðgert er að samningurinn komi til framkvæmda á fyrsta ársfjórðungi 2027.
Umsamið kaupverð í viðskiptunum er 15,6 milljarðar króna. Þar af koma 9 milljarðar króna til greiðslu þegar samningurinn kemur til framkvæmda. Þá koma 3,5 milljarðar króna til greiðslu á árinu 2033 og 3,1 milljarður króna á árinu 2038. Hinar frestuðu greiðslur eru verðtryggðar og bera 3% ársvexti.
„Vegna fyrirvara um fjármögnun hefur á þessum tímapunkti ekki verið tekin ákvörðun um að uppfæra bókfært verðmat Blikastaðalands ehf. Í árshlutareikningi Arion banka í lok september 2026 er félagið metið á um 7,6 milljarða króna,“ segir enn fremur í tilkynningunni.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗