Katrín Tanja og Brooks eiga von á öðru barni

Brooks Laich og Katrín Tanja Davíðsdóttir Laich eiga von á öðru barni. Samsett mynd/Skjáskot/Instagram

Crossfit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir Laich og eiginmaður hennar, Brooks Laich fyrrverandi atvinnumaður í íshokkí, eiga von á sínu öðru barni. Hjónin greindu frá gleðifréttunum á Instagram um helgina. 

Katrín Tanja greindi frá því að barn númer tvö væri á leiðinni í myndskeiði sem hún birti á Instagram. Greindi hún frá því að von væri á barninu í maí og fjölskyldan gæti ekki verið spenntari. 

Hjónin voru stödd í brúðkaupsferð á Bora Bora þegar þau greindu frá óléttunni en þau gengu í hjónaband í lok sumars. Fyrir eiga þau dótturina Emberly Hebu sem er nýorðin eins árs. 

Smartland óskar parinu til hamingju. 

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab