Selja Blikastaðalandið á rúma 15 milljarða

Kaupin eru gerð með fyrirvara um fjármögnun hins sérhæfða sjóðs.

Kaupin eru gerð með fyrirvara um fjármögnun hins sérhæfða sjóðs. mbl.is/Árni Sæberg

Landey ehf., dótturfélag Arion banka hf., hefur samið við Íslensk verðbréf hf., fyrir hönd óstofnaðs sérhæfðs sjóðs, um kaup sjóðsins á öllu hlutafé Landeyjar í Blikastaðalandi ehf., sem á og þróar Blikastaðaland í Mosfellsbæ. 

Í tilkynningu frá Arion banka segir að kaupverðið sé 15,6 milljarðar króna en kaupin eru gerð með fyrirvara um fjármögnun hins sérhæfða sjóðs.

Ráðgert er að samningurinn komi til framkvæmda á fyrsta ársfjórðungi 2027. 

Umsamið kaupverð í viðskiptunum er 15,6 milljarðar króna. Þar af koma 9 milljarðar króna til greiðslu þegar samningurinn kemur til framkvæmda. Þá koma 3,5 milljarðar króna til greiðslu á árinu 2033 og 3,1 milljarður króna á árinu 2038. Hinar frestuðu greiðslur eru verðtryggðar og bera 3% ársvexti. 

„Vegna fyrirvara um fjármögnun hefur á þessum tímapunkti ekki verið tekin ákvörðun um að uppfæra bókfært verðmat Blikastaðalands ehf. Í árshlutareikningi Arion banka í lok september 2026 er félagið metið á um 7,6 milljarða króna,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab