Enn einn stjórinn látinn fara
Watford hefur rekið knattspyrnustjórann Alessio Dionisi eftir aðeins fimm sigra í 18 leikjum undir hans stjórn.
Eftir 4:0-tap gegn Sheffield United á laugardag situr liðið í 21. sæti ensku B-deildarinnar, einu sæti fyrir ofan fallsvæðið.
Ítalinn tók við af Ed Still í sumar en tapaði níu af síðustu 13 deildarleikjum sínum. Watford mátti einnig þola 5:1-tap á heimavelli gegn Peterborough United, úr C-deildinni, í bikarnum.
Watford leitar nú að sínum 16. fastráðna knattspyrnustjóra frá því í september 2019.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗