Akranes nálgast suðurodda Afríku
Systurskipin nýju, Skipanes og Akranes. Þau eru hluti af endurnýjun á fraktskipaflota Smyril Line. Ljósmynd/Smyril Line
Akranes, nýtt fraktskip Smyril Line, er komið vel áleiðis til Evrópu á leið sinni frá Kína.
Brottför skipsins tafðist vegna bilunar sem upp kom í prufusiglinu.
Sjá má á vef Marine Traffic að skipið er nú undan austurströnd Suður-Afríku.
Áætlað er að skipið komi til hafnarborgarinnar Zeebrugge í Belgíu 10. desember næstkomandi.
Lagði af stað í lok október
Kringvarp Føroya, færeyska ríkisútvarpið, greinir frá því að skipið hafi lagt upp frá Kína 28. október síðastliðinn en upphaflega hafi það átt að koma til Evrópu í sumar.
Viðgerðin hafi því tekið rúma fjóra mánuði.
Þá kemur fram að systurskip Akraness, Skipanes, sem einnig er smíðað í Kína, sé enn í höfn í Hong Kong.
Svona lítur skipaumferðin fyrir suðurodda Afríku út upplýsingavef Marine Traffic. Akranes er í upplýsingaglugga og auðkennt með litlum hring út af austurströnd S-Afríku. Skjáskot/Marine Traffic
Eldur kom upp í vélarrúmi skipsins 2. september eftir að það lagði upp frá Kína en unnið er að viðgerðum í Hong Kong.
Systurskip smíðuð í Yantai
Smyril line hefur áður greint frá því að gert sé ráð fyrir að viðgerðum verði lokið í lok þessa mánaðar.
Bæði skip eru smíðuð í CIMC-Raffles skipasmíðastöðinni í Yantai í Kína en formleg afhending á Akranesi fór fram 16. október síðastliðinn. Skipanes var afhent 25. ágúst.
Skipin eru svokölluð ekjuflutningaskip, eða RoRo sem stendur fyrir Roll-on-Roll-off.
Þau eru um 190 metra löng og með flutningsrými fyrir um 3.300 lengdarmetra af ökutækjum og öðrum farmi.
Skipin eru hönnuð fyrir vöruflutninga á Norður-Atlantshafi og eru hluti af endurnýjun skipaflota Smyril Line.
Ætlun skipafélagsins er að bæði skip komi inn í núverandi siglingakerfi Smyril Line sem meðal annars tengir Rotterdam, Færeyjar og Ísland.
Hér hafa flutningaskipin viðkomu í Þorlákshöfn.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
