Messi heppinn að sleppa við rautt spjald fyrir þessa hegðun um helgina - Myndband
Lionel Messi var heppinn að sleppa við rautt spjald í 3-0 tapi Inter Miami gegn Columbus Crew í úrslitakeppni MLS-deildarinnar um helgina.
Messi ætlaði að taka innkast undir lok fyrri hálfleiks þegar Gonzalo Tapia, leikmaður Columbus, stóð fyrir honum. Argentínumaðurinn missti þolinmæðina og kastaði boltanum beint í andlit Tapia af stuttu færi.
Dómarinn sýndi báðum leikmönnum gula spjaldið en Laurent Courtois, þjálfari Columbus, taldi Messi eiga skilið að fá rautt.
„Allir vita að þetta verðskuldaði meira en gult spjald. Þetta er bara sorglegt,“ sagði Courtois.
Inter Miami er komið í erfiða stöðu eftir tapið en liðin mætast aftur á föstudag.
Lionel Messi takes a throw-in off Gonzalo Tapia's face https://t.co/jX3tTuojHe
— Tom Bogert (@tombogert) November 22, 2026
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗