„Vertu bara ekkert hissa á því ef einkaskilaboðin þín leka á netið á morgun“

Það er mikið misræmi milli meðvitundar almennings um upplýsingaöryggi og þess sem rætt er um í bransanum segir Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata. Helgi Hrafn, sem er vel að sér í upplýsingaöryggismálum, sagði í færslu á Facebook fyrir helgi að fram undan væri erfitt tímabil þar sem mikið verður um bresti í upplýsingaöryggi. 

Í síðustu viku varð hýsingarfyrirtækið 1984 ehf. fyrir umfangsmikilli og alvarlegri tölvuárás.

Sjá einnig: Segir árásina á 1984 ehf. hafa verið fyrirsjáanlega - „Fyrirsjáanleg af því að 1984 spurði engra spurninga“

Helgi Hrafn ræddi um þetta í Bítinu á Bylgjunni í morgun. „Ég vil ekki selja þetta sem einhvern heimsendi, þetta verður allt í lagi á endanum en nú verður tímabil, ár, kannski nokkur, enginn veit nákvæmlega hversu langur tími, þar sem tölvuöryggi verður alveg sérlega erfitt viðfangsefni,“ segir hann.

„Að mínu mati, á næstu örfáu árum, verður miklu meira um alvarleg öryggisbrot heldur en við eigum að venjast. Ástæðan fyrir þessu er að tölvuöryggismál hafa alltaf verið vígbúnaðarkapphlaup á milli hakkara, sem ég einfalda niður í góða liðið og vonda liðið. Góða liðið er að leita að göllum í hugbúnaði í þeim tilgangi að laga þessa veikleika, hakkar til að laga eða verjast. Og svo vonda liðið, sem eru glæpagengi eða leyniþjónustur. Mörg ríki reka hakkarastofur sem hluta af hernum eða sem sérstakri stofnun. Rússland er með hakkaraherdeildir og leyfir glæpagengjunum sínum að djöflast í Vesturlöndum án afleiðinga.“

Nú hafa bæði þessi lið tekið í notkun gervigreindina. „Gervigreindin hefur gert það miklu miklu auðveldara að finna þessa öryggisveikleika,“ segir Helgi Hrafn. Á næstu árum mun það takast að finna alla veikleika sem manneskjur hafa ekki náð að finna og þá fáum við aftur jafnvægi. 

Á meðan situr almenningur eftir með takmarkaðar upplýsingar, til dæmis með árásina á 1984 þá segir Helgi Hrafn það vera mjög erfitt að vita hver var þarna að baki. Nú sé tími til að hugsa um að eiga öryggisafrit af sínum gögnum þar sem ekki verður alltaf hægt að treysta á að allt virki. „Þetta verður eiginlega skelfing,“ segir Helgi Hrafn um næstu árin. „Vertu bara ekkert hissa á því ef einkaskilaboðin þín leka á netið á morgun. Þetta er bara svona.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab