Pochettino pirraður: Þetta var aldrei brot
Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Manchester United, er á því að Sam Barrott hefði gert mistök með því að reka Leny Yoro af velli í 4:0-tapi Manchester United gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Yoro fékk beint rautt spjald fyrir að taka Alexander Isak framherja Liverpool niður þegar Isak var kominn einn í gegn.
„Ég sagðist vera ósammála ákvörðuninni því mér fannst Isak ekki hafa stjórn á boltanum þegar hann tók við honum,“ sagði Pochettino eftir fyrsta leik sinn við stjórnvölinn.
„Boltinn stefndi í átt að markverðinum, svo hann hægði á sér. Yoro kom aftan að honum og það varð snerting, en allir sem hafa spilað fótbolta vita að það er aldrei brot.“
Pochettino velti því einnig fyrir sér hvers vegna United hefði ekki fengið vítaspyrnu þegar Jeremy Jacquet tæklaði Bryan Mbeumo fyrr í leiknum.
„Ef maður ber þessi atvik saman, segið mér þá hvernig við eigum að tala um liðið núna? Auðvitað verðum við að vera gagnrýnir, en við spiluðum meira en 80 mínútur tíu á móti ellefu á ósanngjarnan hátt. Okkur var refsað harðlega en þeim var ekki refsað.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗