Söguleg pattstaða á COP31

COP31-loftslagsráðstefnan fór fram í Tyrklandi.

COP31-loftslagsráðstefnan fór fram í Tyrklandi. AFP/Ozan Kose

Djúpstæður ágreiningur um jarðefnaeldsneyti og fjármuni kom í veg fyrir nýtt samkomulag um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum á nýafstaðinni COP31-loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Tyrklandi.

Síðast þegar samkomulag COP-ráðstefnu fór út um þúfur með þessum hætti var árið 2009 í Kaupmannahöfn í Danmörku. 

Viðræðunum átti að ljúka á föstudag en þær drógust þar til í gær í leit að sameiginlegum grundvelli. Varð ráðstefnan þar með sú lengsta í sögu loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna.

Hvergi minnst á jarðefnaeldsneyti

Samkomulagið reyndist að endingu óásættanlegt, meðal annars fyrir Evrópusambandið og eyríki Kyrrahafsins, vegna þess að ekki var minnst beint á jarðefnaeldsneyti í samkomulaginu. 

Á sama tíma mótmæltu mörg fátækari ríki því að engar skýrar fjárhagslegar skuldbindingar væru frá auðugri ríkjum til að hjálpa þeim að laga sig að áhrifum hækkandi hitastigs.

António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sem sótti sína síðustu COP-ráðstefnu áður en hann lætur af embætti, hefur lýst yfir vonsvikni sinni.

Hann beindi spjótum sínum að því sem hann kallaði „öflug hagsmunaöfl jarðefnaeldsneytisiðnaðarins“ sem hann sagði fara „að fordæmi tóbaksrisanna: afbaka vísindin, tefja stefnumótun, hindra aðgerðir og raka saman gríðarlegum hagnaði á meðan fólk um allan heim borgar brúsann“.

Ný drög í gærmorgun

Eftir tveggja vikna viðræður voru fulltrúum ráðstefnunnar kynnt ný drög að samkomulagi snemma í gærmorgun í tilraun til að rjúfa pattstöðuna. 

Jarðefnaeldsneyti kom hvergi þar fyrir í textanum. 

Fulltrúi ESB, írski ráðherrann Darragh O'Brien, tók skýrt fram að ESB mótmælti harðlega og sagði að „ákvarðanirnar kæmust hvergi nærri þeim metnaði sem þarf til að takast á við loftslagsbreytingar“.

Þá gagnrýndu önnur ríki á borð við Panama og Marshall-eyjar jafnframt samkomulagið fyrir að ganga ekki nógu langt í að takast á við hraða loftslagsbreytinga.

Litlar undirtektir

Í fyrstu drögum samkomulagsins sem lögð voru fram fyrir viku var minnst á jarðefnaeldsneyti sex sinnum við litlar undirtektir olíuframleiðsluríkja. 

Fulltrúi Sádi-Arabíu, Mohammad Ayoub, sagði ríkið taka þátt í ráðstefnunni í góðri trú en hélt því fram að ábyrgð þess á sögulegri losun gróðurhúsalofttegunda væri tiltölulega lítil.

Rússland varaði við því að „grípa til slagorða“ varðandi kol, olíu og gas og hélt því fram að ef ríki hyrfu of hratt frá jarðefnaeldsneyti myndi það leiða til orkufátæktar.

Fjárveitingar til fátækari ríkja

Annað stórt álitamál var veiting fjármuna til fátækari ríkja til að takast á við áhrif loftslagsbreytinga á borð við hitabylgjur og þurrk.

Á COP30-loftslagsráðstefnunni í Brasilíu í fyrra var samþykkt að þrefalda fjármagn í þessu skyni en í drögum samkomulagsins í ár var hvorki vísað í ákveðnar tölur né viðmið þess efnis, sem vakti ótta um að það veitti ríkari þjóðum of mikið svigrúm.

Samstaða flókin í klofnum heimi

Þótt aðalsamkomulagið hafi runnið út í sandinn náðust þó nokkrir samningar, meðal annars framfarir varðandi svokölluð réttlát umskipti, það er ramma til að styðja við launafólk og samfélög á meðan hagkerfi færa sig yfir í hreina orku.

Atburðir helgarinnar hafa þó ýtt undir efasemdarraddir um að loftslagsferli Sameinuðu þjóðanna, sem byggir á samstöðu ríkja, geti skilað árangri í heimi sem klofinn er í alþjóðastjórnmálalegum skilningi.

Loftslagsstjóri Sameinuðu þjóðanna, Simon Stiell, sagðist ætla að leita ráða um mögulegar umbætur á ferlinu, en næsta ráðstefna, COP32 í Eþíópíu, er fyrirhuguð í nóvember 2027.

Loftslagsferli Sameinuðu þjóðanna hefur „orðið fyrir áföllum áður og komið sterkara til baka,“ sagði Stiell við fulltrúa ráðstefnunnar. „Það verður að gera það aftur.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab