Kalla eftir frekari gögnum frá olíufélögunum
Athugunin beinist meðal annars að breytingum á innkaupsverði eldsneytis í haust og hvernig þær hafa skilað sér í verði til neytenda. mbl.is/Kristinn Magnússon
Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að kalla eftir frekari gögnum frá olíufélögunum til að leggja mat á þróun eldsneytisverðs frá 1. september síðastliðnum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu en þar segir að athugunin beinist meðal annars að breytingum á innkaupsverði eldsneytis í haust og hvernig þær hafa skilað sér í verði til neytenda.
Jafnframt verður lagt mat á þróun álagningar og verðmyndunar á markaðnum og hvort vísbendingar séu um samkeppnishindranir.
Sem kunnugt er hafa orðið verulegar breytingar á eldsneytisverði á árinu en í upphafi árs voru opinberg gjöld af eldsneyti felld niður þegar kílómetragjald tók gildi.
Í lok febrúar hófust hernaðarátök í Miðausturlöndum sem hafa haft veruleg áhrif á framboð og verð eldsneytis og leiddu til mikillar óvissu á eldsneytismörkuðum.
Til að bregðast við þessu ákváðu stjórnvöld að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti tímabundið úr 24% í 11% frá 1. maí 2026 til 31. ágúst 2026.
Með lögum sem sett voru á Alþingi var Samkeppniseftirlitinu falið að hafa eftirlit með með því að virðisaukaskattslækkunin skilaði sér að fullu í endanlegu útsöluverði til neytenda. Samkvæmt lögunum bar seljendum eldsneytis aðtryggja að lækkunin skilaði sér að fullu í endanlegu útsöluverði.
Samkeppniseftirlitið óskaði eftir ítarlegum gögnum frá olíufélögunum til þess að meta hvort lækkuná virðisaukaskatti á tímabilinu 1. maí til 31. ágúst sl. hefði skilað sér að fullu í endanlegu útsöluverði.
Síðustu gögn vegna þessarar gagnaöflunar bárust eftirlitinu í lok september. Greining Samkeppniseftirlitsins á gögnunum er langt komin, en fyrir liggur þó að Samkeppniseftirlitið taldi ekki ástæðu til að beita íhlutun á meðan á lækkunartímabilinu stóð.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗