Neyðarviðbragð virkjað í Frankfurt – Grunur um bráðsmitandi veiru

Mikill viðbúnaður var á flugvellinum í Frankfurt í Þýskalandi í gærmorgun eftir að um 40 farþegar um borð í tveimur flugvélum frá Dóminíska lýðveldinu veiktust. Grunur leikur á að nóróveira hafi verið á ferðinni.

Þýska blaðið Bild greinir frá því að fjöldi sjúkraflutningamanna, heilbrigðisstarfsmanna og slökkviliðsmanna hafi verið kallaðir út þegar tilkynning barst um veikindin.

Flugvélarnar voru að koma frá La Romana í Dóminíska lýðveldinu. Eftir lendingu fóru heilbrigðisstarfsmenn um borð og skoðuðu farþegana. Tveir voru fluttir á sjúkrahús til frekari skoðunar.

Athygli vekur að flestir farþeganna í annarri flugvélinni höfðu nýverið lokið 27 daga siglingu með skemmtiferðaskipinu AidaBella, sem kom til hafnar í La Romana aðeins nokkrum klukkustundum fyrir brottför flugvélarinnar.

Þetta hefur vakið grunsemdir um að veikindin kunni að tengjast siglingunni. Ekki hefur þó verið staðfest að nóróveira hafi komið upp um borð í skipinu.

Nóróveira er mjög smitandi og veldur meðal annars uppköstum, niðurgangi og kviðverkjum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab