Atli hjólar í flokkinn sem hann hefur stutt um árabil – „Aulinn ég“
Ritstjórn DV
Mánudaginn 23. nóvember 2026 09:00
Atli Bollason listamaður og Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar. Samsett mynd.
Atli Bollason, sem hefur um árabil verið skráður í Samfylkinguna og oft kosið flokkinn, gagnrýnir eigin flokksfélaga harðlega vegna stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda.
Atli skrifaði aðsenda grein sem birtist á vef Vísis í morgun þar sem hann sakar Samfylkinguna um að hafa snúið baki við grundvallargildum jafnaðarstefnunnar og veltir því fyrir sér hvort flokkurinn hafi fórnað hugsjónum sínum fyrir ríkisstjórnarsamstarfið.
Hann segir tengsl sín við Samfylkinguna sterk. Nokkrir í nánustu fjölskyldu hans hafi gegnt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn og margir samferðamenn hans í félagsstarfi undanfarna tvo áratugi hafi starfað innan hans.
„Ég hef talið mig eiga samleið með Samfylkingunni vegna þess að hún er frjálslyndur jafnaðarmannaflokkur sem byggir eftir því stefnu sína á frelsi, jafnrétti og bræðralagi. Aulinn ég,“ segir hann.
Útlendingaandúð eða mannvonska?
Atli bendir á að Samfylkingin hafi lagt áherslu á að bæta hag almennings með því að koma ríkisfjármálunum í jafnvægi, en spyr hvernig hertar aðgerðir ríkisstjórnarinnar gagnvart innflytjendum utan EES samræmist þeirri stefnu.
Hann gagnrýnir jafnframt aðgerðir sem hann telur geta orðið til þess að Ísland fari á mis við mikilvægt framlag innflytjenda til samfélagsins. Þá gagnrýnir hann fyrirhugaða skerðingu á aðgengi útlendinga að íslenskunámi og vísar til þess að hlutfall innflytjenda sem kunni tungumál viðkomandi lands sé mun lægra á Íslandi en að meðaltali í OECD-ríkjunum.
„Ræður útlendingaandúð Samfylkingar för eða er mannvonskan í samstarfsflokkunum svo djúpstæð að gerður var faustískur samningur um sérstakan ruddaskap gegn útlendingum í skiptum fyrir hallalaus fjárlög? Hvar í þessum áherslum má greina hugmyndirnar um frelsi og jafnrétti og bræðralag?“
Sendir þingmönnum Samfylkingarinnar skýr skilaboð
Atli bendir á að fólk þurfi að hafa starfað á Íslandi í tólf mánuði til að eiga rétt á atvinnuleysisbótum og segir umræddar reglubreytingar ekki beinast að fólki á flótta. Hann telur því að verið sé að leysa vandamál sem sé ekki til staðar, en breytingarnar geti þess í stað sundrað fjölskyldum, skapað erfiðleika í ýmsum atvinnugreinum og aukið álag á stjórnsýsluna.
Þá varar hann við þeim sálrænu afleiðingum sem óvissa um framtíðina geti haft fyrir þá sem breytingarnar snerta. „Hvernig þetta gagnast íslenskum almenningi er óljóst,“ segir hann.
Atli segir eðlilegt að ólíkar skoðanir þrífist innan stórra stjórnmálaflokka og að málamiðlanir séu nauðsynlegar í ríkisstjórnarsamstarfi. Hann telur hins vegar að nýlegar laga- og reglugerðarbreytingar gangi þvert gegn grundvallargildum jafnaðarstefnunnar, meðal annars með mismunun á grundvelli þjóðernis og með því að gera lítið úr framlagi láglaunafólks og foreldra til samfélagsins.
„Ég biðla til þeirra þingmanna sem kalla sig jafnaðarmenn að beita sér gegn þessum breytingum ellegar kenna sig í framtíðinni við einhverja aðra og grimmúðlegri stjórnmálastefnu,“ segir Atli að lokum.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗