Heimsmeistari hneig niður í beinni í gær - Sjáðu hið óhugnanlega augnablik

Leandro Paredes, leikmaður Boca Juniors og fyrrum heimsmeistari með Argentínu, hneig niður í beinni sjónvarpsútsendingu eftir sigur liðsins í gær.

Boca Juniors vann Atletico Mineiro 2-0 en Paredes missti skyndilega meðvitund í viðtali eftir leikinn. Sjúkraliðar komu honum strax til aðstoðar og náði hann fljótlega að standa upp aftur.

Paredes hafði fundið fyrir svima í leiknum og óskaði hann eftir skiptingu á 58. mínútu. Mikill hiti og raki voru í Barranquilla í Kólumbíu þar sem leikurinn fór fram.

Hinn 32 ára gamli Paredes var fluttur á sjúkrahús til skoðunar en fékk að fara heim síðar um kvöldið.

„Takk fyrir öll skilaboðin. Þetta var bara svimi,“ skrifaði Paredes á Instagram og fullvissaði stuðningsmenn um að honum liði vel.

🚨😳 Leandro Paredes suddenly collapsed while giving an interview to DSports in the tunnel. He was immediately attended to by medical staff and is now doing well. 🙏🇦🇷 https://t.co/Q3jdeAjgR4

— All About Argentina 🛎🇦🇷 (@AlbicelesteTalk) November 22, 2026

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab