Aðsend grein: Samgöngusáttmálinn: Hver er skuldbinding ríkisins?
Aðsend grein úr Morgunblaðinu
Í fróðlegri frétt Morgunblaðsins 14. nóvember lætur fjármálaráðherra, Daði Már Kristófersson, hafa eftir sér: „Ríkið mun fyrir sitt leyti standa við sáttmálann.“ Spurningin er bara hvaða sáttmála ráðherra er að vísa til, upprunalega sáttmálans eða endurskoðaða.
Sáttmálinn var fyrst undirritaður 2019 og Alþingi samþykkti gerð hans með heimildarlögum á vorþingi 2020. Niðurstöðutala sáttmálans á framkvæmdaáætlun þá var 120 ma.kr., verðlag 2019. Fram kemur í greinargerð að ríkið muni leggja fram bein framlög að upphæð 30 ma.kr. auk Keldnalands sem áætlað er að gefi af sér 15 ma.kr. Bein framlög sveitarfélaganna voru í samningnum ákveðin 15 ma.kr. Frekari fjármögnun að upphæð 60 ma.kr. var fyrirhuguð með flýti- og umferðargjöldum sem Betri samgöngur ohf. áttu að innheimta. Slík gjöld eru í raun sérstök umferðartengd skattlagning á íbúa höfuðborgarsvæðisins og verður sú upphæð vart talin til skuldbindinga ríkisins.
Sáttmálinn var endurskoðaður og uppfærður 2024 og hækkaði þá niðurstöðutala samningsins um 159%, upp í 311 ma.kr. á verðlagi 2024. Hækkun vísitölu verðtryggingar var á sama tíma 32% sem gæfi hækkun á niðurstöðutölu samgöngusáttmálans upp í 160 ma.kr. Endurskoðunin var samþykkt af ráðherra og sveitarstjórnum með fyrirvara um fjárveitingar Alþingis sem ekki hafa séð dagsins ljós, þannig að spurning er hvort skuldbindingar ríkisins hafa í raun hækkað umfram eðlilegar verðbætur.
Síðan hefur það gerst að borgarstjóri Reykjavíkur hefur lýst yfir að hin sérstaka skattheimta á íbúa höfuðborgarsvæðisins með flýti- og umferðargjöldum sé ekki ásættanleg.
Fjármögnun samgöngusáttmálans er þannig í uppnámi en spurningin sem eftir stendur er: Hvað á ráðherra við með orðum sínum, hverjar eru þær skuldbindingar ríkisins sem staðið verður við?
Áhrif gjalda og tafa í umferð
Umferðartafir girða nú af miðsvæði Reykjavíkur þar sem stjórnarráðið er og Ráðhúsið. Tafir þessar þreyta fólk og minnka vinnuafköst svo fleira fólk þarf til sömu starfa. Það er einnig þekkt að fólk veigrar sér við að sækja vinnu þar sem þarf að brjótast gegnum miklar tafir frá heimili. Hæfileikafólk sem bæði ríki og borg reiða sig á til að halda uppi afköstum á auðvelt með að fá vinnu annars staðar, sem mun líka hafa afleiðingar. Sömu áhrif verða þurfi fólk að greiða fyrir aðgang að vinnustað sínum með umferðargjöldum, hvort sem þau eru skattur eða greiðsla fyrir umferð um jarðgöng. Borgarstjóri gerir því rétt í að hafna flýti- og umferðargjöldum og það ætti ráðherra að gera líka.
Tafirnar eru orðnar það miklar að kostnaður atvinnuveganna er farinn að valda minni þjóðarframleiðslu auk þess sem þær valda streitu hjá fólki og þar með vex kostnaður við heilbrigðiskerfið. Fólk hefur að auki minni tíma til að sinna börnum sínum og gerir þá auknar kröfur til skólanna með tilheyrandi kostnaði. Að öllu samanlögðu eru það því ekki bara hagsmunir íbúa höfuðborgarsvæðisins að minnka umferðartafir þar, heldur hagur alls ríkisins.
Sóun í framkvæmd
Það var mjög óheppilegt hvað Fossvogsbrú hækkaði í verði vegna þess að þáverandi borgarstjóri og bæjarstjóri Kópavogs komu sér saman um að hún ætti að hafa listrænt gildi. Fleiri dæmi mætti nefna af svipuðum toga sem félag á borð við Betri samgöngur ohf. ætti og var ef til vill stofnað til að ráða við en gerði ekki. Það rýrir trú á samgöngusáttmálanum.
Það er augljóst að með bættu flæði umferðar batnar líka þjónusta strætó og hana má bæta enn betur með aukningu á tíðni ferða, sem er rekstrarmál utan samgöngusáttmálans. Innan sáttmálans fellur hins vegar snjallljósabúnaður ásamt stuttum sérakreinum yfir gatnamót þar sem þarf. Að flýta fyrir vögnum umfram þetta með óslitnum sérakreinum milli gatnamóta svo vagnar þurfi ekki að aka í blandaðri umferð er hins vegar ekki hagkvæmt heldur sóun, enda styðst slík krafa ekki við samgöngusáttmálann að neinu leyti.
Taka verður fyrir sóun fjármuna í framkvæmd samgöngusáttmálans.
Hvað er til ráða?
Sú óvissa sem er á fjármögnun samgöngusáttmálans knýr á um að flýta hagkvæmustu framkvæmdum og setja í forgang svo tryggt sé að sem mest af þeim sé klárað ef fé þrýtur. Jafnframt knýr óvissan og mikill vöxtur umferðartafa á um að skipta óarðbærum fjárfestingum út fyrir aðrar hagkvæmari. Þetta þarf stýrihópur samgöngusáttmálans að ræða en þær viðræður mega ekki verða til að seinka arðbærustu flæðisbætandi aðgerðunum, þvert á móti þarf að flýta þeim en fresta öllum aðgerðum vegna borgarlínu öðrum en þeim sem lúta að forgangi á ljósum og aðbúnaði fólks á biðstöðvum.
Elías Elíasson er verkfræðingur.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗