Rússar vilja að Norðmönnum verði refsað
Íshokkísamband Rússlands hefur farið fram á það við Alþjóðaíshokkísambandið að það rannsaki sniðgöngu Noregs og fleiri landa á leikjum gegn Rússlandi á heimsmeistaramótinu og refsi viðkomandi samböndum, að því er NTB greinir frá.
Forseti sambandsins, Vladislav Tretiak, sagði að formleg kvörtun hefði verið send siðanefnd IIHF.
Noregur, Svíþjóð, Finnland, Danmörk, Tékkland, Austurríki og Lettland hafa tilkynnt um sniðgöngu þrátt fyrir úrskurð Alþjóðaíþróttadómstólsins (CAS) sem heimilar endurkomu Rússlands.
Kanada hefur einnig lýst því yfir að rússneskum leikmönnum og embættismönnum verði synjað um vegabréfsáritun á heimsmeistaramót unglinga.
Þýskaland íhugar að hætta við að halda heimsmeistaramót karla á næsta ári.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗