Sjáðu ótrúlegt atvik: Bálreiður Neville sló sjálfan sig utan undir eftir frammistöðu United
Gary Neville, goðsögn Manchester United og sparkspekingur, vakti mikla athygli þegar hann sló sjálfan sig tvisvar utan undir í beinni útsendingu á Sky Sports eftir 4-0 tap liðsins gegn Liverpool í gær.
Neville var æfur yfir varnarleik United og gagnrýndi leikmenn harðlega eftir leikinn.
„Ég sé þá aldrei á tánum, vakandi eða með einbeitinguna í lagi,“ sagði Neville og sló sjálfan sig í andlitið til að undirstrika orð sín.
Jamie Carragher gat ekki annað en hlegið að uppátækinu en stuðningsmenn United gerðu sér einnig mat úr því á samfélagsmiðlum.
United lék manni færri frá áttundu mínútu eftir brottvísun Leny Yoro. Tapið kom í fyrsta leik liðsins undir stjórn Mauricio Pochettino og situr United í næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
This ones better! 🤦♂️😂😂😂😂 https://t.co/amnUmA7wCk
— Jamie Carragher (@Carra23) November 22, 2026
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗