Sigurjón hafi ekki sagt satt um viðskipti sín

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður fjárlaganefndar, mun ekki hafa sagt satt um viðskipti sín og eiginkonu sinnar í tengslum við strandveiðiútgerðina Sleppa ehf. Fram kemur í Morgunblaðinu í dag að kaupsamningi Sigurbjargar Áróru Ásgeirsdóttur við þau hjónin hafi verið rift og kemur fram í samningi sem blaðið er með undir höndum að kaupverðið hafi verið 255 þúsund krónur sem hafi aldrei verið greiddar. 

Sigurjón ræddi um kaupin í viðtali við Vísi sumarið 2025 og þá hafnaði hann alfarið að um einhver sýndarviðskipti væru að ræða og hann áætlaði að fá um 16 til 18 milljónir króna fyrir hlutinn. 

Sleppa gerir út bátinn Sigurlaugu ÓF 38, áður Sigurlaugu SK 138. Í fyrra kom fram að Sigurjón og eiginkona hans áttu sitt hvoran helmningshlutinn í útgerðinni en Sigurjón hafi selt Sigurbjörgu Áróru sinn hlut og eiginkona hans 1 prósent hlut. Samkvæmt reglugerð um strandveiðar sem samþykkt var í fyrra þarf 51 prósent eignarhald til þess að fá að veiða.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab