Fékk fyrsta vegabréfið 91 árs og hefur nú heimsótt allar heimsálfur
Joy Ryan fékk sitt fyrsta vegabréf 91 árs. Fimm árum síðar hafði hún heimsótt allar sjö heimsálfur. Samsett mynd/Instagram
Bandaríska amman Joy Ryan var 96 ára þegar hún kom til Ástralíu í fyrsta sinn í september ásamt Brad Ryan, barnabarni sínu. Þar með höfðu þau ferðast saman til allra sjö heimsálfa.
„Jæja, gamla mín, þér tókst það loksins,“ segist Joy hafa hugsað með sér þegar hún náði markinu. Í samtali við People segir hún að kóalabirnirnir hafi heillað hana sérstaklega.
Hafði aldrei séð fjall
Haustið 2015 höfðu þau Joy og Brad ekki sést í tíu ár. Brad hafði fjarlægst föðurfjölskyldu sína eftir skilnað foreldra sinna en ákvað að hafa samband við ömmu sína á ný. Hann vissi að hún hafði aldrei séð fjall og bauð henni í útilegu í Great Smoky Mountains-þjóðgarðinum.
Ferðunum fjölgaði og í maí 2023 varð Joy elst til að hafa heimsótt alla 63 þjóðgarða Bandaríkjanna. Ferðalögin færðu þau jafnframt nær hvort öðru á ný og Brad segir þau hafa hjálpað sér að sættast við fortíðina.
Joy fékk sitt fyrsta vegabréf 91 árs. Síðan hefur hún meðal annars séð fíla í Kenía og skoðað kastala á Írlandi með barnabarni sínu. Á leiðinni til Ástralíu höfðu þau viðkomu í Taílandi þar sem þau skoðuðu hof og ræddu við búddamunka.
Joy segir að á ferðum þeirra hafi fólk sagt henni að hún hafi hvatt það til að leggja í ferðalög sem það hafði aldrei látið sig dreyma um. Því segist hún vera stolt af.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
