Sigríður furðar sig á meðferð áttræðs manns – „Argasti dónaskapur“
Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins, gagnrýnir harðlega biðlista í íslenska heilbrigðiskerfinu og segir það „argasta dónaskap“ að tilkynna öldruðum manni að hann þurfi að bíða í allt að fimm ár eftir augasteinsaðgerð.
Sigríður viðrar þessa skoðun sína í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag, en tilefnið er frétt mbl.is frá því um helgina um Gunnar Þór Jónsson sem verður áttræður bráðlega.
Honum brá verulega þegar hann fékk þau skilaboð á Heilsuveru að bið eftir augasteinaskiptum á Landspítalanum væri fjögur til fimm ár.
Sigríður líkir ástandinu við skömmtunarkerfi Sovétríkjanna sálugu og segir heilbrigðisyfirvöld verða að viðurkenna að hið opinbera ráði ekki við að sinna allri þeirri þjónustu sem því er ætlað að veita.
Í frétt Morgunblaðsins kom fram að Gunnar hafði gert ráð fyrir einhverri bið, jafnvel einu til tveimur árum, en ekki svo langri. Hann ákvað því að afþakka pláss á biðlistanum og leita til einkareknu augnlæknastöðvarinnar Sjónlags. Þar fékk hann tíma í aðgerð eftir nokkra daga, en þarf að greiða um 400 þúsund krónur úr eigin vasa.
„Ég verð áttræður núna í febrúar og ég get ekkert beðið í fimm ár eftir að fá skýra sjón,“ sagði Gunnar við Morgunblaðið og bætti við að sjónskerðingin væri farin að hamla lestri.
Rifjar upp brandara Ronalds Reagan
Í pistli sínum rifjar Sigríður upp gamansögu sem Ronald Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, sagði gjarnan um mann í Sovétríkjunum sem fékk úthlutað bifreið en þurfti að bíða í tíu ár eftir afhendingu. Maðurinn spurði hvort hann ætti að sækja bílinn fyrir eða eftir hádegi, enda ætti píparinn að koma fyrir hádegi sama dag.
Sigríður segir söguna minna á hvernig opinber þjónusta geti orðið að skömmtunarkerfi þar sem framboð og eftirspurn fái ekki að ráða för.
Hún bendir á að fjármagn hins opinbera sé takmarkað og gagnrýnir meðal annars hversu fáum hafi verið hleypt í læknanám hér á landi. Það hafi leitt til skorts á starfsfólki í greininni.
Að hennar mati sýnir mál Gunnars að hið opinbera ráði ekki við að veita þá þjónustu sem almenningi sé gefin von um.
„Það er með öllu óskiljanlegt að heilbrigðisyfirvöld lýsi því ekki bara yfir og hætti að gefa væntingar um eitthvað annað,“ skrifar hún.
„Skilaboð til manns um að hugað verði að heilsu hans eftir um það bil fimm ár er til að æra óstöðugan og hreinlega argasti dónaskapur.“
Fælir fólk frá því að leita sér aðstoðar
Sigríður gagnrýnir einnig ástandið á bráðamóttöku Landspítalans og nefnir dæmi af skyldmenni sínu sem hafi beðið þar í tæpar átta klukkustundir eftir skoðun vegna gruns um beinbrot vikuna áður.
Hún telur langa bið eftir þjónustu jafnvel fæla fólk frá því að leita sér læknisaðstoðar.
Þingmaðurinn segir einkarekna heilbrigðisþjónustu geta verið skilvirka og hagkvæma og fagnar því að ný einkarekin úrræði séu að verða til.
„Almenningur mun taka því fagnandi og það eiga stjórnvöld og spítalinn líka að gera,“ segir Sigríður að lokum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗