Íslensku fyrirmyndirnar mikilvægar
Guðný Árnadóttir efaðist aldrei um að hægt væri að snúa aftur í atvinnumennsku í fótbolta eftir barnsburð. Hún sagði margar íslenskar knattspyrnukonur hafa sýnt henni að það væri raunhæft.
Guðný eignaðist sitt fyrsta barn 18. apríl og hóf keppni á ný með Kristianstad í Svíþjóð 13. september. Hún hefur síðan leikið fimm heila leiki og verið valin aftur í landsliðið.
„Það eru svo margar íslenskar konur sem ég þekki eða veit af sem hafa gert þetta. Ég efaðist aldrei um að þetta væri hægt af því að svo margar voru búnar að gera þetta,“ sagði Guðný í samtali við Morgunblaðið.
Hún leitaði einnig beint eftir ráðleggingum.
„Ég var í miklum samskiptum við sumar þeirra á ákveðnum tímapunktum, sérstaklega þegar ég var að byrja að æfa aftur. Ég fékk hjálp við hvað ég ætti að gera og fyrstu erfiðu vikurnar eftir fæðinguna.“
Guðný taldi Ísland búa vel að fyrirmyndum sem hefðu sameinað móðurhlutverkið og knattspyrnuferilinn.
„Ég er ekki viss um að í mörgum löndum séu svona margar fyrirmyndir sem hafa gert þetta oftar en einu sinni, jafnvel oftar en tvisvar, og komið til baka.“
Hún sagði gott að geta áfram leitað til þeirra.
„Svo er þetta endalaust púsluspil eftir að barnið kemur og þá er gott að vita af þeim sem hafa gert þetta áður, jafnvel með fleiri en eitt barn.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗