Ísland jafnast meðal Evrópuríkja

Samkvæmt rannsókn Hagstofunnar er nærri fjórði hver einstaklingur í leiguhúsnæí, eða 23,2%, undir lágtekjumörkum, en aðeins 4,2% þeirra sem búa í eigin húsnæðí. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hlutfall einstaklinga undir lágtekjumörkum var 8,5% árið 2026, eða um 34.000 einstaklingar, og Gini-stuðullinn var 23,6 samkvæmt niðurstöðum lífskjararannsóknar Hagstofunnar.

Í nýjasta evrópska samanburðinum, fyrir árið 2025, var Ísland með lægsta lágtekjuhlutfallið og lægsta Gini-stuðulinn af öllum Evrópulöndum.

Þeir sem eru undir lágtekjumörkum búa á heimilum þar sem ráðstöfunartekjur heimilisins eru undir 60% af miðgildi ráðstöfunartekna í landinu að teknu tilliti til heimilisstærðar. Á árunum 2021-2026 var lágtekjuhlutfallið á bilinu 7,4% til 9,0%, lægst árið 2023 og hæst árið 2022. Breytingar á milli ára á tímabilinu eru allar innan skekkjumarka.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab