Staðfestir árás á rússneskt skip
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti greinir frá því í færslu á X að Úkraína hafi staðið að árásum á tvö rússnesk skip undan strönd líbísku hafnarborgarinnar Benghazi.
„Þetta átti sér allt stað undan strönd Líbíu. Hermenn okkar beittu sjö úkraínskum sjávardrónum. Þrátt fyrir allar tilraunir óvinarins til að verjast árásinni var rússnesku korvettunni Merkury sökkt,“ skrifaði Zelensky á X.
Úkraínumenn beindu einnig spjótum sínum að rússnesku þurrflutningaskipi sem sagt er að hafi verið notað til vopnaflutninga.
„Annað skotmark okkar var rússneska þurrflutningaskipið MV ANGARA, sem óvinurinn notaði til að flytja vopn. Niðurstaða: skotmarkið hæft,“ bætti Selenskí við.
Hann leggur áherslu á að Úkraína muni halda aðgerðum sínum áfram á „tilgreindum hafsvæðum“.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗