Tugir látnir eftir eldsvoða í sælgætisverksmiðju
Leitar- og björgunarfólk ber líkpoka með líkamsleifum fórnarlamba eftir eldsvoða í sælgætisverksmiðjunni. AFP
Indónesísk yfirvöld staðfestu í dag að 24 hefðu látist í eldsvoða sem upp kom í sælgætisverksmiðju í vesturhluta Indónesíu á laugardagskvöld. 30 manns er enn saknað að því er Reuters greinir frá.
Said Iqbal, ráðgjafi forsetans í vinnumarkaðsmálum, sagði fréttamönnum að 24 hefðu látist og bætti við að verið væri að meta hvernig öryggisreglum hefði verið framfylgt og að hann myndi kalla framkvæmdastjóra verksmiðjunnar á sinn fund.
Fyrstu upplýsingar bentu til þess að eldurinn kynni að hafa kviknað út frá skammhlaupi í loftkælingu, bætti Said við.
Steven Erwin Wijaya forstjóri verksmiðjunnar hefur sagt að um 300 manns hafi verið á verksmiðjusvæðinu á vaktinni á laugardag.
Fyrstu upplýsingar bentu til þess að eldurinn kynni að hafa kviknað út frá skammhlaupi í loftkælingu. AFP
Leitin hélt áfram í dag, en glóð sem enn logaði og sífellt óstöðugra burðarvirki byggingarinnar ollu björgunarmönnum hættu, að sögn Al Amrad, yfirmanns leitar- og björgunarstofnunar Banten.
Vegna þess hve eldurinn var ákafur var ekki hægt að bera kennsl á fórnarlömbin sem fundist hafa og unnið er að því að safna DNA-sýnum frá ættingjum, ferli sem gæti tekið vikur, sagði Wahyu Hidayati, embættismaður lögreglunnar.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
