Brandarinn sem kostaði hann Bond-hlutverkið

Velski leikarinn Matthew Rhys stakk í gamni upp á því að James Bond ætti að vera „haltur“ þegar hann fór í prufu fyrir hlutverk 007, sem Daniel Craig hreppti síðar. Í viðtali við Conan O’Brien frá árinu 2023, sem hefur nú komið aftur í sviðsljósið, segir hinn 52 ára gamli Rhys að framleiðendur Bond-myndanna hafi spurt hann á fundi hvað hann myndi gera öðruvísi ef hann fengi tækifæri til að leika hinn fræga njósnara í myndinni Casino Royale frá 2006. 

„Er þetta einhver gildra, eða er þetta alvöru spurning?“ rifjar Rhys upp að hann hafi hugsað með sjálfum sér á þeim tíma. 

Rhys sagði að hann hefði þá sagt hræðilegan brandara um haltrandi göngulag Bond, brandara sem féll alls ekki í kramið hjá framleiðendunum. „Þetta versnaði bara. Það varð algjör þögn,“ rifjaði hann upp. „Ég hugsaði því með mér að ég skyldi ganga lengra og sagði: ‚Augnleppur.‘ Og þá brotnaði ég bara saman. Þetta stóð yfir í um það bil 30 sekúndur eftir það.“ Rhys bætti við hlæjandi: „Þetta var mitt Bond-augnablik. Ég hugsa oft um þetta.“ 

Rhys varð sá fyrsti til að fá tvenn verðlaun sem aðalleikari í tveimur ólíkum þáttaröðum, Widow's Bay og The Beast In Me, á EMMY-verðlaunahátíðinni í september 2026.

Rhys viðurkenndi einnig að hann hefði „enn ekki fundið nein skýr svör sem hefðu heillað“ framleiðendur Bond-myndanna þennan dag, og hann veltir því oft fyrir sér hvernig Craig brást við. 

Craig fór með hlutverk Bond í fimm kvikmyndum, Casino Royale til No Time to Die sem kom út árið 2021. 

 

O’Brien sagði við Rhys að hann hefði verið „frábær“ í hlutverki 007, en Rhys svaraði: „Takk fyrir. Ég sagði svo mörgum að ég yrði það. Ég sagði meira að segja fjölskyldunni minni að ég yrði það.“ Rhys minntist þess einnig að hafa verið hluti af „nokkuð stórum hópi ungra, hvítra karlmanna sem var boðið að lesa handritið að Casino Royale, klæðast snyrtilegum, dökkum jakkafötum og mæta á skrifstofu Broccoli-fjölskyldunnar.“ 

Í gegnum árin hafa Henry Cavill, Michael Fassbender, Sam Heughan, Alex O’Loughlin, James Purefoy, Antony Starr og Julian McMahon allir staðfest að þeir hafi komið til greina í hlutverk Bond, sem Craig fór síðar með. Á mánudaginn var tilkynnt að Robert Pattinson yrði næsti leikarinn og jafnframt sá sjöundi til að taka að sér hið eftirsótta hlutverk Bond. 

Sagt er að Nicholas Hoult, Josh O’Connor, Callum Turner og Jack Lowden hafi farið í prufutökur fyrir væntanlega 007-kvikmynd. Denis Villeneuve, sem vann með Pattinson að væntanlegri kvikmynd, Dune: Part 3, mun leikstýra næstu Bond-mynd. Amazon MGM Studios framleiðir myndina, en Broccoli-fjölskyldan afhenti fyrirtækinu, sem er í eigu Jeffs Bezos, réttindin að kvikmyndabálknum á síðasta ári. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab