Óþekkt kona fannst myrt árið 1978 – Nú beinist grunur að alræmdum raðmorðingja
Nærri hálfri öld eftir að lík óþekktrar konu fannst í almenningsgarði í New York-ríki hafa bandarískir rannsakendur loksins komist að því hver hún var.
Ný DNA-tækni hefur varpað ljósi á 48 ára gamla ráðgátu og nú beinist athygli lögreglu að alræmdum raðmorðingja sem myrti að minnsta kosti sex manns. Konan sem fannst hét Sofia Margherita Marrone en hafði um áratugaskeið aðeins verið þekkt sem „Montauk Mary“, eftir staðnum þar sem lík hennar fannst árið 1978.
„Fox News fjallar ítarlega um málið og þær vísbendingar sem benda til þess að Marrone kunni að hafa verið eitt fórnarlamba Richards Biegenwald, alræmds raðmorðingja sem gekk undir viðurnefninu „Jersey Shore Thrill Killer“
Fann líkið í hádegishléinu
Það var þann 22. mars 1978 sem bandarískur flughermaður, sem var í hádegishléi, kom auga á lík konu skammt frá ratsjárturni Camp Hero í Montauk, á austurodda Long Island í New York-ríki.
Staðurinn átti síðar eftir að verða þekktur fyrir að hafa veitt höfundum Netflix-þáttanna Stranger Things innblástur.
Konan hafði verið skotin fjórum sinnum, þrisvar í fæturna og einu sinni í brjóstið. Rannsókn leiddi í ljós að hún hafði verið myrt aðeins nokkrum klukkustundum áður en lík hennar fannst.
Þrátt fyrir umfangsmikla rannsókn tókst lögreglu ekki að bera kennsl á hana og árin liðu án þess að nokkur svör fengjust.
Nú, 48 árum síðar, hefur ný DNA-tækni loksins leitt í ljós hver konan var.
Marrone var búsett í Pleasantville í New Jersey og hafði síðast sést á lífi þann 16. mars 1978 þegar hún yfirgaf sjúkrahús í Somers Point. Sex dögum síðar fannst hún myrt í Montauk sem er um 400 kílómetrum frá staðnum þar sem hún sást síðast.
Vísbendingar benda til raðmorðingja
Þótt nú hafi tekist að bera kennsl á Marrone er morðið sjálft enn óupplýst. Rannsakendur telja þó að vísbendingar bendi til manns að nafni Richard Biegenwald, sem var einn alræmdasti raðmorðingi New Jersey.
Biegenwald var dæmdur fyrir sex morð sem framin voru á árunum 1958 til 1982 og var auk þess grunaður um þrjú önnur. Hann lést í fangelsi árið 2008 þar sem hann afplánaði lífstíðardóm.
Að sögn Ray Tierney, saksóknara í Suffolk-sýslu, eru einkum tvö atriði sem vekja grunsemdir um að Biegenwald hafi myrt Marrone.
Í fyrsta lagi var hún skotin með sjaldgæfum skotfærum af gerðinni .22 Short, sömu gerð og Biegenwald notaði þegar lögregla handtók hann árið 1983.
Í öðru lagi hafði vitni á sínum tíma séð skeggjaðan mann sitja í gulum bíl með skráningarnúmeri frá New Jersey, skammt frá þeim stað þar sem lík Marrone fannst.
Biegenwald var þekktur fyrir að vera með skegg og átti nokkra bíla, þar á meðal einn sem passaði að einhverju leyti við lýsingu vitnisins.
Raðmorðinginn var jafnframt þekktur fyrir að taka ókunnuga einstaklinga upp í bíl sinn þegar hann rakst á þá gangandi í bæjum við strönd New Jersey.
Þessar vísbendingar hafa orðið til þess að lögregla rannsakar nú möguleg tengsl hans við morðið. Yfirvöld leggja þó áherslu á að málið teljist enn óupplýst.
Sex einstaklingar fengu nöfn sín aftur
Marrone er ein sex einstaklinga sem bandarískum rannsakendum hefur nýlega tekist að bera kennsl á eftir áratugalanga óvissu.
Meðal hinna er Antoinette Rugg, 26 ára móðir sem fannst grafin í almenningsgarði árið 1978. Svo virðist sem belti hafi verið notað til að kyrkja Rugg sem skildi eftir sig tíu ára son.
Einnig tókst nýlega að bera kennsl á Ramon Perez y Rivera, 41 árs mann sem fannst látinn árið 1976. Lík hans var illa brunnið og á því var skotsár.
Þá voru nýlega borin kennsl á Kyong-Ok Kim, 32 ára konu frá Suður-Kóreu sem fannst látin árið 1990, og Omelios Steward, 28 ára mann sem talinn er hafa drukknað sama ár.
Sjötti einstaklingurinn var Andreas Kupke, 27 ára Þjóðverji sem ferðaðist til Bandaríkjanna í tíu daga frí haustið 1999 en sneri aldrei heim. Líkamsleifar hans fundust á aðfangadag sama ár í Montauk. Dánarorsök hans er enn óljós.
Joseph Giacalone, fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður í New York, segir árangurinn sýna hversu miklu megi áorka með nýrri tækni og þrautseigju rannsakenda.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗