Erfiðara að vera í opnu sambandi
Euphoria-leikkonan Hunter Schafer segir í viðtali við Cosmopolitan að það sé flókið að vera í opnu sambandi. Núna finnst henni þægilegri tilhugsun um að vera í föstu sambandi með einni manneskju.
Schafer sem er 27 ára er hinsegin segist hafa hafa prófað að vera í opnum samböndum og vera hitta marga einstaklinga á sama tíma. Í dag finnst henni það flókin tilhugsun. „Mér finnst það notalegt og ljúft og það er auðveldara,“ sagði leikkonan um hefðbundin sambönd.
Ókosturinn við að vera í opnu sambandi er meðal annars skipulagið sem felst í því að hitta margar manneskjur í einu. „Ég veit ekki hvort það er slæmt að segja þetta en mér finnst eins og því fylgi oft meiri vinna,“ sagði Schafer og talaði um skilulagið. „Bara skipulagningin. Ég hata að skipuleggja.“
Hugmyndin er töff
Leikkonan segist hins vegar ekki vera á móti opnum samböndum. „Mér finnst hugmyndin góð. Mér finnst hún mjög töff. Það eru til áhugaverðar bækur um þetta. Í framkvæmd er það miklu erfiðara. Og ég hef heldur ekki tíma.“
Hér fyrir neðan má sjá viðtalið við Schafer.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
