„Venjuleg búðarferð breyttist í harmleik“
Björgunarmenn hafa keppst við að finna íbúa sem eru fastir undir rústum fjölbýlishúss sem hrundi að hluta eftir árás Rússa á Kænugarðshérað í Úkraínu sem kostuðu að minnsta kosti 15 manns lífið.
Rússar hafa látið sprengjum rigna yfir Úkraínu úr lofti en Vladímír Pútín Rússlandsforseti hét því í síðustu viku að bregðast við með „sársaukafullum“ hætti við árásum Úkraínumanna á Krímbrúna, eftir að hafa átt leiðtogafund með Donald Trump Bandaríkjaforseta og Xi Jinping, forseta Kína.
Næturárás á Dymer, um 45 kílómetrum norður af úkraínsku höfuðborginni, hæfði fimm hæða byggingu og létust að minnsta kosti 11 manns, að sögn Tymur Tkachenko, embættismanns í Kænugarðshéraði.
Úkraínskir björgunarmenn bera lík fórnarlambs á vettvangi íbúðarhúss sem hrundi að hluta eftir loftárás Rússa á Dymer í Kænugarðshéraði. AFP
„Björgunarmenn náðu líki enn eins einstaklings undan rústunum,“ skrifaði Tkachenko á Telegram og staðfesti að tala látinna væri komin upp í 11.
Almannavarnir Úkraínu greindu fyrr frá því á Telegram að meðal hinna látnu væru unglingur og kona á fimmtugsaldri.
Þar kom fram fyrr að björgunarmenn leituðu að ellefu manns, þar á meðal tveimur börnum, sem „svöruðu ekki eða ekki næðist til“.
Dmytro Lubinets, umboðsmaður mannréttinda í Úkraínu, sagði árásina hluta af „þjóðarmorðsstríði Rússlands gegn Úkraínu“.
Heimurinn verður að hætta að líta undan
„Heimurinn verður að hætta að líta undan. Fordæmið þessa ógn, dragið Rússland til ábyrgðar og bregðist við strax til að stöðva dráp á saklausum Úkraínumönnum,“ sagði hann á X.
Árás Rússa á stórmarkað í Vyshneve varð þremur til viðbótar að bana og særði 15, þar á meðal þrjú börn, skrifaði Illya Dikov bæjarstjóri á Facebook.
„Fólk hafði einfaldlega farið í búðina til að kaupa í matinn. Venjuleg búðarferð breyttist í harmleik vegna rússneskrar árásar,“ sagði Tkachenko.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
